Lífið

„Ekkert pláss fyrir mann með pung­­fýlu að skíta út mitt heimili“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Bassi Maraj er viðmælandi í Einkalífinu.
Bassi Maraj er viðmælandi í Einkalífinu. Vísir/Vilhelm

„Það er bara ógeðslega leim að leita að maka á Íslandi og íslenskir karlmenn eru ekki málið,“ segir rapparinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj en hann er viðmælandi í nýjasta þætti Einkalífsins. 

Hægt er að horfa á viðtalið við Basssa í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan:

Hundarnir númer eitt, tvö og þrjú

Í þættinum ræðir Bassi meðal annars um ástarlíf sitt og segist aldrei hafa orðið yfir sig ástfanginn. Hann býr einn með hundunum sínum tveimur, Tímoni og Nölu.

„Ég vil líka ekki bjóða hverjum sem er inn í líf hundanna minna. Hundarnir mínir eru númer eitt, tvö og þrjú. Það er ekkert pláss fyrir einhvern mann með einhverja pungfýlu að koma og skíta út heimilið mitt og ég þarf að þrífa upp eftir hann. Hell no sko.“

Aðspurður hvort hann hafi orðið ástfanginn svarar Bassi:

„Nei ekki þannig séð. En ég hef náttúrulega alltaf verið ástfanginn af sjálfum mér sem er gott. Það er bara ógeðslega leim að leita á Íslandi og íslenskir karlmenn eru ekki málið. Þeir eru bara ógeðslega leiðinlegir. Nei okei kannski ekki alveg, en það hefur enginn náð mér. Ég er líka fljótur að missa áhugann.“

„Þetta er ekki í lagi Bassi“

En hvernig ætli draumaprinsinn hans Bassa sé?

„Hann elskar að fara í göngutúra og upp á fjall, hann elskar hunda, er ógeðslega fyndinn og helst hávaxinn. Svo skiptir máli að vera almennilegur, opinn og fyndinn. Og senda mér nóg af hundamyndböndum og myndum, bara allt sem þú finnur.“

Bassi segir einnig að hann eigi mögulega erfitt með að hleypa einhverjum nálægt hjartanu sínu.

„Vinkona mín fór einu sinni yfir skilaboð á milli mín og einhvers stráks sem ég var að tala við og hún var bara: Þetta er ekki í lagi Bassi. Ég er þurrasta manneskja sem ég veit um í samskiptum. 

Það er til dæmis enginn maður að fara að fá hjörtu frá mér í skilaboðum nema kannski að hann sé að tríta mig almennilega.“

Bóndi sem bruggar landa

Í æsku dreymdi Bassa um að verða pizzabakari hjá Dominos. Í dag sér hann fyrir sér að eldast umkringdur íslenskri náttúru á sveitabæ. 

„Ég sé mig fyrir mér úti í sveit í framtíðinni með svona tíu hunda. Orðinn skeggjaður að brugga landa, með dýpri og öðruvísi rödd en stórar varir líka. Mig langar alveg ótrúlega mikið að vera bóndi. Að vinna á bóndabæ í íslenskri náttúru,“ segir Bassi og bætir við að hann fari í langan göngutúr með hundana á hverjum degi og það veiti honum vellíðan. 


Tengdar fréttir

Raggi Kjartans kenndi Æði strákunum gjörningalist á typpinu

„Þetta var alveg með topp þremur steiktustu mómentum lífs míns. Að vera fokking öskrandi, ber að ofan, á meðan Patti er að mála með typpinu og það er einhver fimmtugur karlmaður hoppandi á typpinu í sófanum,“ segir Bassi Maraj um upplifun sína af listgjörning með Ragga Kjartans í síðasta þætti ÆÐI.

Bassi Maraj: „Já, ég er að flinga“

Heyrst hefur að raunveruleikastjarnan og tónlistarmaðurinn Bassi Maraj sé svífandi um á bleiku skýi þessa dagana. Bleiku hjartalaga skýi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.