Hvessir í kvöld og má búast við stormi í fyrramálið Atli Ísleifsson skrifar 20. nóvember 2023 07:08 Það bætir í vind í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með áframhaldandi rigningu og hlýju veðri. Vísir/Vilhelm Djúp lægð er nú við suðvesturhluta Grænland og mun hún nálgast Ísland smám saman í dag. Það verður því hægt vaxandi suðlæg átt á landinu fyrri parts dags og væta með köflum, en þurrt og bjart fyrir austan.
Á vef Veðurstofunnar segir að það muni hlýna í veðri. Síðdegis munu þó skil frá lægðinni ganga inn yfir landið og mun þá bæta í vind og úrkomu. Í kvöld má svo búast við allhvassri sunnanátt með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands. „Það bætir enn frekar í vind í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með áframhaldandi rigningu og hlýju veðri, en eftir hádegi á morgun verður vindur suðvestlægari og það kólnar með skúrum eða éljum. Á norðaustanverðu landinu verður úrkoma þó lítil sem engin. Á miðvikudag dregur svo hægt og bítandi úr vindi, en áfram má búast við skúrum eða éljum á vestanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 15-23 m/s um morguninn og rigning, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 12 stig. Vestlægari eftir hádegi með skúrum eða éljum og kólnandi veðri, en léttir til á Austurlandi. Á miðvikudag: Vestan og suðvestan 13-18, en dregur smám saman úr vindi síðdegis. Víða él, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 0 til 4 stig. Á fimmtudag: Gengur í norðvestan 13-20 austantil á landinu, annars mun hægari. Dálítil él, en léttir til um landið sunnan- og vestanvert. Frost 0 til 7 stig. Á föstudag: Norðlæg átt 3-10, en 10-15 austantil. Víða léttskýjað og frost 1 til 8 stig. Á laugardag: Norðaustlæg átt og bjartviðri, en dálítil él um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðaustanátt og dálítil él, en bjart að mestu sunnan heiða. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira