Tónlist

„Tilfinningingin alltaf sú að þú sért aldrei langt frá“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn og leikarinn Arnmundur Ernst var að senda frá sér einlæga ábreiðu af laginu When I Think Of Angels.
Tónlistarmaðurinn og leikarinn Arnmundur Ernst var að senda frá sér einlæga ábreiðu af laginu When I Think Of Angels. Saga Sig

Leikarinn og tónlistarmaðurinn Arnmundur Ernst Backman sendi frá sér einlæga ábreiðu af laginu When I Think Of Angels í gær. Móðir hans, Edda Heiðrún Backman, hefði orðið 66 ára í fyrradag en hún féll frá árið 2016. 

Arnmundur vildi að eigin sögn senda ábreiðuna út í kosmósinn með hlýhug og þökkum fyrir allt sem þau mæðginin áttu.

Hér má sjá flutninginn: 

Klippa: Arnmundur Ernst - When I Think Of Angels

Á samfélagsmiðlinum Instagram skrifar Arnmundur:

„Elsku mamma hefði náð 66 ára aldri í gær. Þrátt fyrir að hinsta viðarför skilji okkur að er tilfinningingin alltaf sú að þú sért aldrei langt frá.

Þessa litlu lifandi ábreiðu á lagi KK og Ellenar Kristjáns vil ég senda út í kosmósinn - með hlýhug og þökkum fyrir allt sem við áttum.

Guðmundur Óskar- þakka þér yndislegan undirleik og kæra vináttu.

Sigfús Jóhann Árnason - takk fyrir óaðfinnanlega upptöku og hlýjar móttökur í Verbúð 53.“

Arnmundur vinnur nú að sínu fyrsta höfundarverki sem kemur út á næsta ári. Guðmundur Óskar, gjarnan kenndur við sveitina GÓSS, sem fer með undirspil í myndbandinu vinnur að verkinu með honum. Hér má sjá flutninginn á Youtube






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.