Skellihló með kærastanum á rauðu ljósi Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 21. desember 2023 10:13 Aníta Briem kunni vel að meta einlæga og á tíðum sprenghlægilega frásögn Kristínar Þóru. Vísir/Vilhelm Stórleikkonan Aníta Briem hló sig máttlausa á einleik Kristínar Þóru Haraldsdóttur í Þjóðleikhúskjallaranum. Inga Lind skellti sér til Barcelona og Ólafur Ragnar sneri aftur frá Osló.
Asinn er mikill þessa síðustu daga fyrir jólin. Fólk á höfuðborgarsvæðinu situr fast í umferð frá því byrjar að rökkva og fram yfir kvöldmat á leið sinni hingað og þangað í innkaupum. Fólk á landsbyggðinni skellihlær á meðan að borgarbörnunum. Það var einmitt skellihlátur í Þjóðleikhúskjallaranum á sunnudagskvöldið þar sem Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona tróð upp með einleik sinn Á rauðu ljósi. Kristín Þóra hefur verið mjög opin með það að hreint og beint atvinnuleysi, eftir að hafa sagt upp föstu starfi í Þjóðleikhúsinu, hafi knúið hana til að búa til verkið sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Kristín Þóra fer á kostum í Á rauðu ljósi. Fleiri sýningum hefur verið bætt við á nýju ári.Vísir/Hulda Margrét Aníta Briem og Hafþór Waldorff voru á meðal gesta í salnum sem skellihlógu að frásögn Kristínar Þóru sem er með fyndnari konum landsins án nokkurs vafa. Lára Jóhanna Jónsdóttir leikkona var í góðra vinkvenna hópi og ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir líka. Hjónin Grímar Jónsson framleiðandi og Guðríður Lára Þrastardóttir lögfræðingur voru meðal gesta sem skemmtu sér vel. Þorsteinn V. Einarsson hjá Karlmennskunni var mættur í Hagkaup í Smáralind í jólaösinni á mánudagskvöldið. Hann virkaði ögn þreytulegur mögulega vegna samskiptanna við frægasta starfsmann Bónus, Ester í bókhaldinu. Þarna var Þorsteinn búinn að segja sorrí við Ester og stærsta upphlaupinu í jólabókaflóðinu í ár líklega lokið. Á sama tíma var Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Hansa, á þeytingi í Kringlunni sem er hverfisverslunarmiðstöð Hönsu sem býr í Hlíðunum. Óttar Proppé virkaði einnig í jólagjafaleit þar sem hann steig stóru skrefin þín eftir göngunum. Lenya Rún þingmaður Pírata var á pakkavaktinni við pakkaborðið í Smáralind á þriðjudaginn. Sannkallaður Píratapakkari! Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslunnar og Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir eru eitt nýjasta par landsins og nutu á dögunum góðs austurlensks matar á Sumac á Laugaveginum. Svo eru það þau sem eru á þönum erlendis en koma samt heim fyrir jólin. Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti sneri aftur frá Osló á sunnudaginn og Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona var í Gaudiborginni Barcelona. Hún er þó komin heim og búin að sækja ferskt jólatré út í skóg. Hún fagnaði nýju jólatré með piparkökum og heitu súkkulaði. Skúli Helgason borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sást í Everest við jólagjafakaup en til að eyðileggja ekki spennuna á heimilinu í Vesturbænum verður ekki minnst á hvaða vörur Skúli gekk út með. Helgi Áss Grétarsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sást á Schiphol-flugvelli í Hollandi, á leið til landsins eftir vel heppnað skákmót. Við heimkomu tekur oft við kolsvartur veruleikinn en Helgi Áss var mættur í Bónus á þriðjudaginn að kaupa kattamat. Út að borða á McDonald's En svo þarf að fagna tímamótum og það gerði grafíski hönnuðurinn Rakel Guðnadóttir svo sannarlega sem varð fimmtug í gær. Rakel er gift handboltaþjálfaranum Patreki Jóhannessyni en þau eiga fjögur börn. Meðal gesta voru Björk Eiðsdóttir fjölmiðlakona, Birna Björnsdóttir dansskólastjóri og Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur. Veitingarnar voru af öðrum toga en í þrítugsafmæli Rakelar en þá bauð Patrekur henni út að borða á McDonald's á Spáni sem mikið grín hefur verið gert að síðan. Patrekur var á þeim tíma atvinnumaður í handbolta. „Hann þekkti engan matsölustað,“ sagði Rakel í viðtali við Morgunblaðið fyrir tíu árum um eftirminnilegan afmælisdag tíu árum fyrr. Vesturbæjarparið Nadine Guðrún Yaghi hjá Play og Snorri Másson ritstjóri skelltu sér með vinum sínum út að borða á Jómfrúna. Þar voru meðal annars fréttamaðurinn Oddur Þórðarson og Jakob Birgisson uppistandari sem kunna sannarlega að gera vel við sig í mat og drykk. Auðunn Blöndal útvarpsmaður er mættur til Tenerife með fjölskylduna og mætti titla hann fyrirliða þess fjölmenna liðs Íslendinga sem mun dvelja á Spáni yfir hátíðirnar.
Leikhús Ástin og lífið Frægir á ferð Tengdar fréttir Heimsklassa hjón í Hörpu og Eiður Smári datt í lukkupottinn Eiður Smári Guðjohnsen var á meðal verðlaunahafa í jólabingói á Röntgen í vikunni. World Class hjónin Bjössi og Dísa sátu á fremsta bekk á jólatónleikum og sjóðheitar mömmur skelltu sér á tónleika Iceguys með krökkunum. 16. desember 2023 20:38 Eiður Smári og Inga Lind í banastuði á aðventunni Eiður Smári fékk vænt adrenalínkikk, Inga Lind söng í karókí í London og Gylfi Þór Sigurðsson er byrjaður að mála. Já það gekk á með ýmsu um liðna helgi sem kennd er við annan í aðventu. 11. desember 2023 10:35 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira
Heimsklassa hjón í Hörpu og Eiður Smári datt í lukkupottinn Eiður Smári Guðjohnsen var á meðal verðlaunahafa í jólabingói á Röntgen í vikunni. World Class hjónin Bjössi og Dísa sátu á fremsta bekk á jólatónleikum og sjóðheitar mömmur skelltu sér á tónleika Iceguys með krökkunum. 16. desember 2023 20:38
Eiður Smári og Inga Lind í banastuði á aðventunni Eiður Smári fékk vænt adrenalínkikk, Inga Lind söng í karókí í London og Gylfi Þór Sigurðsson er byrjaður að mála. Já það gekk á með ýmsu um liðna helgi sem kennd er við annan í aðventu. 11. desember 2023 10:35