Ofankoma norðantil og herðir víða frost á landinu Atli Ísleifsson skrifar 27. desember 2023 07:03 Veðurstofan gerir ráð fyrir snjókoma með köflum eða éljum á landinu í dag, en þurrt að kalla vestanlands. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir að lægðardragið sem gaf snjóinn í gær muni færast smám saman til vesturs um landið sunnanvert í dag.
Veðurstofan spáir suðaustan átta til fimmtán metrum á sekúndu um landið austanvert, en hægari norðlæga átt vestantil. Það gengur í norðaustan um landið vestanvert í dag, og hvessir aðeins í kvöld þar sem er gert ráð fyrir tíu til átján metrum á sekúndu í kvöld, en hægari suðaustantil. „Snjókoma með köflum eða él, en þurrt að kalla vestanlands. Yfirleitt frostlaust við suður- og austurströndina, en frost annars 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins,“ segir á vef Veðurstofunnar. Fram kemur að í nótt dragi síðan úr ofankomunni og á morgun fimmtudag verði úrkoman orðin ansi lítil á landinu, en á móti herði frost, einkum inn til landsins. „Áramótaveðrið er óðum að taka á sig mynd og eins og spáin er núna er það þokkalegt víðast hvar, él á stangli en hörkufrost um kvöldið. Undanfarna daga hefur verið mikill breytileiki í spánum svo enn er möguleiki á að spáin eigi eftir að breytast,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 5-13 m/s og dálítil él, en lengst af bjart með köflum sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 12 stig, minnst syðst. Á föstudag og laugardag: Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil snjókoma með köflum, en úrkomulítið austantil. Frost víða 1 til 15 stig, kaldast austanlands, en frostlaust syðst. Á sunnudag (gamlársdagur): Líklega fremur hæg norðvestlæg átt og skýjað með köflum og úrkomulítið, en dálítil snjókoma suðaustanlands. Talsvert frost. Á mánudag (nýársdagur): Hæg breytileg átt, bjart og kalt veður. Á þriðjudag: Útlit fyrir þurra suðlæga átt og minnkandi frost.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira