Víðast lítilsháttar úrkoma í dag og hvessir annað kvöld Atli Ísleifsson skrifar 5. janúar 2024 07:16 Gera má ráð fyrir vaxandi suðaustanátt um landið vestanvert annað kvöld. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að víða verði fremur hæg suðvestlæg átt í dag með lítilsháttar úrkomu. Úrkoman geti fallið sem snjór, slydda eða rigning þar sem hitastigið er nálægt frostmarki.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði bjart með köflum og þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Gera má ráð fyrir dálitlum éljum suðvestanlands og að frost á landinu verði á bilinu núll til fimm stig. Allvíða verður frostlaust við ströndina. „Á morgun, laugardag verður hæg breytilega átt og þurrt að kalla á landinu en vaxandi suðaustanátt um landið vestanvert um kvöldið. Frá og með sunnudegi og fram eftir næstu viku er útlit fyrir hlýjar suðlægar áttir en vætu um landið sunnan- og vestanvert, en lengst af þurrt og bjart fyrr norðan og austan. Hlýindin og vætan mun án efa vinna vel á svellbunkum og sköflum, sem valdið hafa vandræðum undanfarið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Yfirleitt hæg suðlæg átt og bjartviðri, en suðaustankaldi, skýjað og úrkomulítið vestantil um kvöldið. Frost víða 0 til 10 stig, en frostlaust vestast. Á sunnudag: Sunnan og suðaustan 8-15 m/s, hvassast vestantil. Víða lítilsháttar væta, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Ákveðnar sunnan- og suðaustanáttir, rigning eða súld með köflum og fremur hlýtt, en lengst af þurrt og bjart norðaustantil.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira