„Ekki viðskiptahættir sem okkur líkar við,“ segir næst stærsti eigandi Samkaupa
![Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA. Fjárfestingafélagið seldi allan hlut sinn í Samkaupum í liðnum mánuði til SKEL fjárfestingafélags.](https://www.visir.is/i/8EDB677F863B00E2B8294C88A82DCF43423B6356AFBE58754B35C33C3AB7C64E_713x0.jpg)
Lífeyrissjóðurinn Birta, sem fer með tæplega fimmtungshlut í Samkaupum, gagnrýnir forsvarsmenn KEA fyrir óvandaða viðskiptahætti við sölu á hlut sínum í matvörukeðjunni til SKEL fjárfestingafélags með því að virða ekki ákvæði í hluthafasamkomulagi sem félagið hafði undirgengist. Framkvæmdastjóri Birtu segir að sjóðurinn muni núna endurskoða afstöðu sína til samkomulagsins vegna breytts eignarhalds en það hefur meðal annars snúið að skipan í stjórn Samkaupa.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/8A5E8A45C790E02430EF8DC8F55B58474F6A088EEA60D156B60458B332A601AD_308x200.jpg)
Verslunarrekstur Orkunnar seldur til Heimkaupa og Gréta María ráðin forstjóri
Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures í eitt og hálft ár, mun taka við sem forstjóri Heimkaupa, samkvæmt heimildum Innherja. Hennar verkefni verður að byggja upp nýtt afl á smásölumarkaði en rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa.