Indiana Jones kýlir aftur nasista í nýjum leik Samúel Karl Ólason skrifar 19. janúar 2024 11:06 Sýndir voru nokkrir leikir sem eru væntanlegir á þessu ári. Forsvarsmenn Microsoft og leikjafyrirtækja félagsins kynntu í gær þá leiki sem væntanlegir eru á árinu. Meðal annars var sýnd stikla úr nýjum leik um fornleifafræðinginn Indiana Jones og kafað var dýpra í aðra væntanlega leiki.
Starfsmenn MachineGames hafa unnið að stórum Indiana Jones leik um nokkuð skeið en hann var opinberaður almennilega í fyrsta sinn í gær. Leikurinn heitir Indiana and the Great Circle og á að gerast milli kvikmyndanna Raiders of the Lost Ark og The Last Crusade. Um er að ræða fyrstu persónu ævintýraleik, þar sem Indiana þarf að leysa hinar ýmsu gátur og kýla nasista. Stundum þarf hann líka að skjóta nasista. Leikurinn notar andlit Harrison Ford, sem leikið hefur Indiana Jones, en ekki rödd hans. Þá kom í ljós í gær að til stendur að gefa leikinn út á þessu ári en hann fékk ekki útgáfudag. Obsidian Entertainment kynnti einnig siklu fyrir leikinn Avowed. Það er fyrstu persónu ævintýraleikur sem gerist í sama söguheimi og Pillars of Eternity leikirnir. Í leiknum munu spilarar geta beitt sverðum, byssum og göldrum til að bjarga heiminum frá nýrri ógn. Leikurinn fékk ekki útgáfudag en hann á að koma út í haust. Oxide Games opinberuðu að leikurinn Ara: History Untold á að koma út í haust. Þarna er um að ræða leik sem er ekki ósvipaður Civilization leikjunum, þar sem spilarar byggja upp ríki frá grunni. Leikurinn Senua's Saga: Hellblade 2 fékk útgáfudag og á ða koma út þann 21. maí. Þessi leikur er framhald leiksins Hellblade: Senua's Sacrifice sem kom út árið 2017. Hann fjallaði um Senua sem er stríðskona frá Orkneyjum og tilraunir hennar til að bjarga sál kærasta síns frá helvíti eftir að þorpið þeirra eru þurrkað út af víkingum. Núna ætlar Senua að ráðast gegn víkingunum og gerist leikurinn að stórum hluta á Íslandi. Senua þjáist af geðrænum vandamálum og fékk fyrri leikurinn mikið hrós fyrir að túlka slík vandræði vel. Þá kynntu starfsmenn Square Enix leikinn Visions of Mana, sem er fyrsti leikurinn í seríunni í fimmtán ár. Þessi hlutverkaleikur á að koma út í sumar en hann fjallar um ungan mann sem heitir Val. Hann þarf að ná til Tree of Mana og gerist leikurinn í hálf-opnum heimi. Að endingu opinberuðu starfsmenn Bethesda Softworks stiklu fyrir nýjan pakka Elder Scrolls Online. Stiklur þessa netspilunarleiks hafa í gegnum árin verið stórfenglegar.
Leikjavísir Tengdar fréttir Leikirnir sem beðið er eftir Auk dauðans er tíminn eini fasti tilverunnar. Tíminn flæðir áfram eins og stórfljót og öll sitjum við föst í þungum straumum hans, þar til við sökkvum, eitt af öðru, og hverfum af þessu sviði sem alheimurinn er. Áður en maður veit af hafa árin svifið hjá og skilið lítið sem ekkert eftir sig, jú, nema tölvuleiki. 10. janúar 2024 08:00 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira
Leikirnir sem beðið er eftir Auk dauðans er tíminn eini fasti tilverunnar. Tíminn flæðir áfram eins og stórfljót og öll sitjum við föst í þungum straumum hans, þar til við sökkvum, eitt af öðru, og hverfum af þessu sviði sem alheimurinn er. Áður en maður veit af hafa árin svifið hjá og skilið lítið sem ekkert eftir sig, jú, nema tölvuleiki. 10. janúar 2024 08:00