Vindur og él nái hámarki fyrri part kvölds Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. febrúar 2024 19:08 Vindurinn og élið ná hámarki fyrri part kvölds í dag. Veðrið róast morgun og í vikunni tekur við kuldakast. Vísir/Vilhelm Veðurfræðingur segir að éljagangur verði langt fram á kvöld. Veðrið nái hámarki snemma í kvöld hvað varðar vind og ákafa éljagangsins. Veðrið róist á morgun og verði orðið gott á sunnudag. Talverðum kulda er síðan spáð í næstu viku.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Blika.is, ræddi við Bylgjufólk í Reykjavík síðdegis um stöðuna á veðrinu og hvernig það þróast fram eftir kvöldi. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að veðrið muni róast á morgun og svo taki við mikill kuldi.Stöð 2 „Staðan akkúrat núna er ekki breytt frá hádeginu. Holtavörðuheiði er ófær og lokuð. Það hefur tekist að halda Bröttubrekku þrátt fyrir að það hafi verið við ramman reip að draga,“ sagði Einar um veðrið. „Á Hellisheiði og Reykjanesbrautinni þá hefur meðalvindur verið að slá í tuttugu metra á sekúndu í hryðjunum og upp í þrjátíu í hviðunum. Með snjómokstri og hreinsun hefur tekist að halda þessu fínu en það er auðvitað skafrenningur á báðum þessum stöðum, sérstaklega á Hellisheiði og í Þrengslum,“ sagði hann. Veðrið í hámarki snemma í kvöld Veðrið nær hámarki seinni partinn og snemma í kvöld að sögn Einars en skafrenningur aukist með meiri snjókomu. En hvernig verður framhaldið? „Það er áfram él alveg fram á kvöldið, vel fram á kvöldið. Það er ennþá hætt við því að það gæti lokast á Bröttubrekku og vestur á firði eins og á Öxnadalsheiðinni. Vonandi helst þetta á Hellisheiðinni og Reykjanesbrautinni en ég er þokkalega bjartsýnn með Reykjanesbrautina ef veðrið versnar ekki meira,“ sagði Einar. „Veðrið verður í hámarki seinni partinn og snemma í kvöld hvað varðar ákefð éljanna og vindinn. Svo eykst auðvitað skafrennningurinn eftir því sem við fáum meiri snjó og þar með blindan,“ sagði hann. Mikill kuldi í kortunum Einar segir að veðrið róist á morgun og svo verði komið fínt veður á sunnudag þó við taki mikið frost í kjölfarið Sérðu aðeins inn í helgina? „Það dregur aðeins úr þessu á morgun, það er samt áfram éljagangur. Það gæti orðið dálítið þungt undir fæti vegna snjókomu því það er ekki þjónusta á nóttunni til dæmis í kringum Vík og með Suðurströndinni. En hann er hægari á morgun,“ sagði Einar „Það gæti komið snjókomubakki hér úr vestri og inn yfir suðvestanlandið seint á morgun og annað kvöld og hann færi svo áfram með suðurströndinni. Það er óvissa með hann. Það verða él líka fyrir norðan. Á sunnudaginn er eiginlega komið skaplegasta veður um land allt og þá erum við líka laus við þessa leiðinlegu suðvestanátt og komin norðanátt af stilltara taginu En er þá mikill kuldi framundan? „Það er spáð talsverðum kulda í næstu viku,“ sagði hann. Upp í tíu-tuttugu stiga frost? „Eitthvað svoleiðis, ég hef ekki skoðað tölurnar rækilega en það verður kalt þó það verði ekki mikill vindur,“ sagði hann.
Veður Mest lesið Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu Innlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Innlent Inga vill skóla með aðgreiningu Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Fleiri stelpur týndar en áður Innlent „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Innlent Fleiri fréttir Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Rólegt veður en kalt næstu daga Kólnar verulega á fyrstu dögum ársins Gular viðvaranir taka gildi Hvessir þegar líður á daginn Spáin fyrir gamlárskvöld að teiknast upp Frystir norðaustantil í kvöld Væta vestantil eftir hádegi Kuldaskil á leið yfir landið Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Jólin verða rauð eftir allt saman Gengur í langvinnt hvassviðri seinni partinn Hiti geti mest náð átján stigum Vara við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum Líklegt að hitamet verði slegið um jólin Sjá meira