Sambandsslit hjá Jordan og Pippen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2024 12:31 Larsa Pippen og Marcus Jordan á meðan allt lék í lyndi. Getty/Gilbert Flores Einu skrýtnasta sambandi síðasta árs er lokið. Erlendir fjölmiðlar fjalla um það að Jordan og Pippen séu hætt saman.
Við erum auðvitað ekki að tala um körfuboltamennina Michael Jordan og Scottie Pippen sem unnu sex meistaratitla saman með Chicago Bulls á tíunda áratugnum. Nei þetta voru Larsa Pippen, fyrrum eiginkona Scottie og Marcus Jordan, sonur Michael Jordan. Pippen er 49 ára og sextán árum eldri en Marcus. BREAKING: Larsa Pippen & Marcus Jordan have broken up after one year of dating. pic.twitter.com/1sLgXdLQB6— NBA Buzz (@OfficialNBABuzz) February 12, 2024 Í nóvember voru fréttir um að parið ætlaði að fara að gifta sig og að Marcus vildi að pabbi sinn yrði svaramaður í brúðkaupinu. Nú nokkrum mánuðum síðar hafa þau bæði fjarlægt myndir af hvoru öðru af samfélagsmiðlum sínum. Erlendir miðlar hafa nú grafið það upp að það hafi orðið sambandsslit hjá þeim Pippen og Jordan. Það var haft eftir Michael Jordan á sínum tíma að hann væri ekki ánægður með samband þeirra en Marcus sagði þá föður sinn hafa verið að grínast. Scottie Pippen hefur notað hvert tækifæri undanfarin ár til að koma höggi á Jordan og þá sérstaklega í ævisögu sinni Unguarded frá 2021. Hann og Larsa eignuðust fjögur börn saman. Scottie gagnrýndi meðal annars heimildaþættina The Last Dance sem honum fannst gera allt of mikið úr Jordan en allt of lítið úr þætti sínum. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=abyQkLjhkvY">watch on YouTube</a>
NBA Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Sjá meira