Allt að fjórtán stiga frost Árni Sæberg skrifar 15. febrúar 2024 07:29 Það gæti orðið ansi kalt í dag. Vísir/Vilhelm Hitastigið er á niðurleið í dag, búast má við því að frost verði 2 til 14 stig þegar kemur fram á kvöld, kaldast norðanlands.
Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að í dag verði breytileg átt, yfirleitt 3 til 8 metrar á sekúndu. Dálítil snjókoma á suðvesturhorninu og stöku él við norðurströndina en annars bjart veður. Létti til suðvestantil þegar líður á daginn en áfram stöku él nyrst á landinu. Þá segir að hæg breytileg átt verði víða um land á morgun. Bjart veður í flestum landshlutum. Síðdegis sé svo hægtvaxandi austanátt og þykkni upp, einkum sunnanlands. Suðaustan 8 til 15 metrar og hlýni með dálítilli vætu um sunnanvert landið um kvöldið. Hlýtt loft komi til landsins á laugardag. Suðaustan 13 til 18 metrar og rigning eða slydda en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 4 til 9 stig síðdegis. Á sunnudag sé útlit fyrir breytilega átt, bjart með köflum og frost, en þykkni upp og hlýni sunnan- og vestanlands síðdegis með rigningu um kvöldið. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustan 3-8 m/s og bjartviðri, frost 1 til 10 stig. Vaxandi austanátt sunnanlands með dálitlum éljum eða skúrum, 10-15 m/s og bætir í úrkomu um kvöldið, hiti í kringum frostmark. Á laugardag:Suðaustan 13-20 og súld eða rigning, hiti 2 til 7 stig. Hægari vindur norðanlands, þurrt veður og frost, en hlánar þar seinnipartinn. Á sunnudag: Suðlæg átt 3-10. Léttskýjað norðan- og austanlands. Smáskúrir á Suður- og Vesturlandi, en bætir í vind með rigningu þar seinnipartinn. Hiti 2 til 7 stig. Á mánudag:Gengur í hvassa sunnanátt með rigningu, en þurrt á norðaustanverðu landinu. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag:Útlit fyrir breytilegar áttir með snjókomu eða rigningu, einkum seinnipartinn. Hiti í kringum frostmark. Á miðvikudag: Vestlæg átt og dregur úr úrkomu en snýst í suðlæga átt og þykknar upp seinnipartinn. Fer að snjóa sunnanlands um kvöldið. Frost um mest allt land.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira