Manúela stressar sig ekki mikið á því að halda röð og reglu í töskunni og lýsir sér sem miklum gramsara. Hún deilir sömuleiðis viðburðaríkri sögu af sinni uppáhalds tösku.

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?
Úff, hvað er ekki í töskunni minni væri betri spurning.
Taskan mín á það til að verða ansi fyrirferðamikil og ég fæ oft spurninguna: „Hvað ertu eiginlega með þarna ofan í“ ef einhver lyftir henni. Það safnast einhvern veginn alltaf alls konar þar. Æj, svo er bara betra að vera við öllu búin.

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?
Ég er alltaf með síma, lykla og veski, það eru nú bara hreinar nauðsynjar og ekki í frásögur færandi. Akkúrat núna er ég líka með símahleðslutæki, batterí í heyrnartækin mín, varasalva, höfuðverkjatöflur, sólgleraugu í einhverri óskhyggju, hreinsiklúta ef ég skildi subba, spegil, penna og dagbók, tölvuna mína, ilmvatn, hárteygjur og selfie ljós!
Oftar en ekki geng ég líka um með pepsi max dós og súkkulaðistykki í töskunni – en ég er búin með það í þessum skrifuðu.
Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?
Það er svo sem ekkert mjög tilfinningalega tengt mér í töskunni – nema þá kannski taskan sjálf, en sú sem ég er með þessa dagana var jólagjöf frá mömmu minni. Svo auðvitað tölvan og síminn - margt þar sem hefur tilfinningalegt gildi.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?
Uppáhaldstaskan mín er eflaust Louis Vuitton handfarangurstaskan mín – en hún hefur fylgt mér víða.
Ég áttaði mig ekki á því hvað hún er mér kær fyrr en í síðustu Bandaríkjaferðinni minni, þar sem ég var að rogast upp í rútu með allan farangurinn og skildi óvart umrædda handfarangurstösku eftir á gangstéttinni.
Ég tók ekki eftir því fyrr en rútan var búin að rúnta í alla vega 15 mín – og þú getur rétt ímyndað þér æsinginn sem þá fór í gang. Blessunarlega var ég að ferðast með algjörum meisturum sem skiptu liði í að elta uppi töskuna, sem fannst að lokum.
Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?
Nei, ég er alveg agaleg í því – og mætti sko alveg taka oftar til og hreinsa úr töskunum – ég geri það aðallega þegar ég skipti um tösku. „Gramsa“ er orð sem lýsir mér og minni töskuhegðun ágætlega.
Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?
Ég tek svona tímabil, þá er ég með sömu töskuna daglega í einhvern tíma – og skipti svo um. Ég nenni ómögulega að ferja allt á milli á hverjum degi.