Tónlist

Frum­sýning: Rán­dýr í aðal­hlut­verki í nýju tónlistarmyndbandi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tónlistarmennirnir Daniil og Preyttboitjokkó við tökurnar í Dúbaí.
Tónlistarmennirnir Daniil og Preyttboitjokkó við tökurnar í Dúbaí. Arnar Dór

Tónlistarmennirnir Prettyboitjokkó og Daniil gáfu nýverið út lagið Sama um. Þeir voru nú að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið sem var tekið upp í Dúbaí og frumsýnt hér að neðan.  

„Við vildum gera eitthvað sem var ekki búið að gera áður. Eitthvað öðruvísi og til að sjokkera enn meira,“ segir tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, um hugmyndina á bakvið myndbandið þar sem tigrísdýr, blettatígur og lúxus bifreiðar eru í aðalhlutverki.

„Ég var skíthræddur við þessi dýr,“ segir Patrik spurður hvernig það hafi verið að vera í krigum þau.

Að sögn Gústa B eru hann og Patrik ósammála um hvort dýrið sé hlébarði eða blettatígur.Arnar Dór

Við tökurnar stökk tígrisdýrið á útvarpsmanninn Gústa B, sem slapp þó ómeiddur. Dýrin er í eigu Sultan M Khoory, eiganda einkadýragarðs, og vinar athafnamannsins Víkings Heiðars Arnórsson sem sá átti hugmyndina að því að tökurnar færu fram í Dubaí.

Tökurnar tóku fjóra daga.Arnar Dór

Í gærkvöldi var myndbandið frumsýnt fyrir fullum sal í Bíó paradís sem vakti mikla lukku meðal gesta.

Hér má sjá myndbandið:

Klippa: Sama um

Lag og texti eru samin af Patrik, Daniil og Ingimar Tryggvason.


Tengdar fréttir

Tígrísdýr stökk á Gústa B í Dubai

Tónlistarmennirnir Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, og Daniil eru staddir í Dubai við tökur á nýju tónlistarmyndbandi þar sem tígrisdýr og hlébarði eru í aðalhlutverki. Með þeim eru útvarpsmaðurinn Gústi B, Víkingur Heiðar Arnórsson, Logi Snær plötusnúður og Arnar Dór Ólafsson myndatökumaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.