Slydda og snjókoma á vestanverðu landinu Atli Ísleifsson skrifar 15. mars 2024 07:12 Hiti verður um eða yfir frostmarki suðvestanlands, en annars núll til átta stiga frost. Vísir/Vilhelm Skammt suðvestur af Reykjanesi er nú þúsund millibara lægð sem mjakast norður og fylgir henni slydda eða snjókoma á vestanverðu landinu. Má reikna með vindi átta til fimmtán metrum á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hægari og þurrt austantil, en dálítil snjókoma þar í kvöld. Hiti verður um eða yfir frostmarki suðvestanlands, en annars núll til átta stiga frost. „Minnkandi suðaustanátt á morgun og hlýnar heldur. Rigning eða slydda á Suðausturlandi og Austfjörðum, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Það er stutt í kalt loft fyrir norðan land og síðdegis er búist við vaxandi norðaustanátt á Vestfjörðum með lítilsháttar snjókomu og kólnandi veðri.Á sunnudag er útlit fyrir hvassa norðaustanátt og hríðarveður, en hægari vind og rigningu eða slyddu sunnan- og austanlands. Þeim sem hyggja á ferðalög er bent á að fylgjast vel með fréttum af færð og veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Minnkandi suðaustanátt og hlýnar, 3-8 m/s seinnipartinn og hiti víða 0 til 5 stig. Rigning eða slydda suðaustantil, en lítilsháttar úrkoma með köflum í öðrum landshlutum. Vaxandi norðaustanátt á Vestfjörðum um kvöldið og kólnar. Á sunnudag: Norðaustan 15-23 á Norðvestur- og Vesturlandi, snjókoma eða él og vægt frost. Mun hægari vindur sunnan- og austantil, rigning eða slydda með köflum og hiti 0 til 5 stig. Á mánudag: Hvöss norðanátt norðvestantil á landinu, annars hægari vindur. Snjókoma eða él og frost 1 til 8 stig, en hlýrra suðaustan- og austantil fram eftir degi með dálítilli rigningu eða slyddu. Herðir á frosti um kvöldið. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðan- og norðvestanátt og él, en úrkomulítið sunnan heiða. Kalt í veðri Á fimmtudag: Útlit fyrir austanátt með snjókomu eða slyddu.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira