Stormur á Vestfjörðum en hægari vindur annars staðar Atli Ísleifsson skrifar 21. mars 2024 07:13 Heldur degur úr vindi í nótt. Vísir/Vilhelm Núna í morgunsárið er 958 millibara lægð yfir Suðurlandi og það er því breytilegt hvaðan vindur blæs í dag. Við suðurströndina verður suðvestan 13 til 18 metrar á sekúndu og rigning en á Vestfjörðum verður norðaustan stormur og snjókoma.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði heldur hægari vindur í öðrum landshlutum með slyddu eða rigningu. Það verður því stórhríð á Vestfjörðum í dag og hríðarveður við Breiðafjörð og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Appelsínugul viðvörun tók gildi klukkan sex í morgun og gildir fram yfir miðnætti. Þá eru gular viðvaranir á Breiðafirði og Ströndum og Norðurlandi vestra fram á kvöld. „Heldur degur úr vindi í nótt, en á morgun er útlit fyrir norðan 13-20 m/s með snjókomu og hiti um og undir frostmarki á norðanverðu landinu en skýjað og þurrt að kalla og hiti 2 til 8 stig sunnantil,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan 15-23 m/s og snjókoma, en úrkomulítið sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki, en mildara á Suðausturlandi. Á laugardag: Minnkandi norðlæg átt, 5-13 m/s síðdegis. Él á Norður- og Austurlandi, annars þurrt að mestu. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst. Á sunnudag: Norðaustan og austan 5-13 m/s og stöku él sums staðar. Frost 1 til 9 stig, en hiti um eða yfir frostmarki sunnanlands. Á mánudag: Breytileg átt og bjartviðri, en stöku él við suður- og austurströndina. Frost 0 til 12 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Ákveðin suðaustanátt með snjókomu eða slyddu, en lengst af þurrt norðaustantil. Á miðvikudag: Útilt fyrir suðaustlæga átt með slyddu eða snjókomu, en éljum um vestanvert landið.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira