Lífið

Bubbi er bílakrotarinn Blanksy

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Gummi Kíró og Hjálmar Örn uðru meðal annarra fyrir barðinu á kroti huldulistamannsins Blanksy.
Gummi Kíró og Hjálmar Örn uðru meðal annarra fyrir barðinu á kroti huldulistamannsins Blanksy. ÖBÍ

Huldulistamaðurinn Blanksy svipti af sér hulunni í kvöld eftir að hafa krotað skilaboð á auglýsingaskilti, eignir áhrifavalda og ýmislegt fleira undanfarna daga. Bubbi Morthens er maðurinn á bakvið lambhúshettuna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryrkjabandalagi Íslands, sem standa að baki gjörningnum. Tilgangur hans er að vekja athygli á kjörum fatlaðs fólks á Íslandi og krefjast löngu tímabærra umbóta.

Athygli vakti á dögunum þegar áhrifavaldarnir Gummi Kíró, Natan Berg, Hjálmar Örn Jóhannsson og Eggert Unnar sögðu frá því á TikTok að krotað hefði verið á bíla þeirra. Orðin Blanksy og „68%“ höfðu verið skrifuð á bíla þeirra.

@gummikiro

Ef einhver veit hver Blanksy er eða hvað 68% þýðir má endilega láta mig vita

original sound - Gummi Kíró

Þeir Eggert Unnar og Natan Berg hétu hverjum þeim sem getur sagt þeim hver Blanksy er möguleika á að vinna 100.000 krónur og er óhætt að segja að mikill fjöldi hafi sett fram ágiskanir eða jafnvel ásakanir í kommentakerfunum. 

Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko, var á meðal þeirra sem töldu sig vita hver Blanksy var. Hann var viss um að Jón Gnarr forsetaframbjóðandi væri huldulistamaðurinn, en svo reyndist ekki vera.

Því til viðbótar vakti mikla athygli og umtal að auglýsingar frá meðal annars Bestu deildinni og Pizzunni voru útkrotaðar á auglýsingaskiltum um allt höfuðborgarsvæðið. Þar mátti sjá nafn Blanksy krotað auk tölunnar „68%“.

„Til útskýringar má benda á að þessi 68% sem Blanksy vísar gjarnan til snúa að því að 68% öryrkja geta ekki mætt óvæntum útgjöldum án þess að stofna til skuldar samkvæmt rannsókn Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Þetta er tvöfalt hærra hlutfall en hjá fólki á vinnumarkaði og algjörlega ólíðandi,“ segir í fréttatilkynningunni. 


Tengdar fréttir

ÖBÍ stóð fyrir gjörningi með „blankaráni“

Öryrkjabandalag Íslands stóð í gær fyrir gjörningi fyrir utan höfuðstöðvar viðskiptabankanna þriggja. Bandalagið hefur undanfarið staðið fyrir gjörningnum undir nafninu Blanka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.