Tíska og hönnun

„Stút­full og við það að springa en hefur aldrei klikkað“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Magnús Jóhann Ragnarsson er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni?
Magnús Jóhann Ragnarsson er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni? Grafík/Vísir

Tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann er stöðugt að og er því mikilvægt fyrir hann að vera vel búinn þegar að það kemur að töskunni hans. Fartölvan er það allra mikilvægasta en hann er duglegur að skipta um tösku og hefur gaman að því að vera með nokkrar töskur í stíl. Magnús Jóhann er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Það leynist ýmislegt skemmtilegt í töskunni hjá Magnúsi Jóhanni eins og sjá má hér: 

Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Magga píanó. Aðsend

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?

Mín taska geymir alltaf fartölvuna mína, hún er heilinn í flestu því sem ég geri, tek upp og geri alla tónlistina mína á henni og því fylgir hún mér á flesta staði. 

Það sem er einnig í henni á þessari stundu er JS Sloane geldolla, Fischersund 54 ilmur, sólgleraugu, hleðslutæki og nokkrir aðrir fúnksjonal hlutir á borð við stúdíó- og giggdagbókina mína, nótnaskriftarbók, panodil, „in-ear“ heyrnartól, pennaveski og dagbókin mín.

Svo þegar ég er að fara að spila einhvers staðar þá hýsir taskan mín líka hljóðkort, snúrur, nótnablöð, settlista og fleira í þeim dúr. Svo er ég líka að dunda við að lesa Rick Rubin bókina þannig að hún er líka í töskunni minni þessa dagana.

Fartölvan gegnir mikilvægu hlutverki í lífi og starfi Magga. Aðsend

Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?

Dagbókin mín er gömul stílabók sem afi minn úr Vestmannaeyjum átti og merkti fremst. Þykir mjög vænt um hana. Sömuleiðis dýrka ég Filson Tablet töskuna mína. 

Ég hef átt hana í mörg ár og ferðast með hana út um allan heim, hefur iðulega verið stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað.

Dagbókin er í miklu uppáhaldi hjá Magga. Aðsend

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?

Fartölvan, gelið og nótnaskriftarbókin fer með mér út í daginn í 96% tilfella.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?

Um þessar mundir er það Burberry taska sem mér áskotnaðist nýlega. Hún er í geggjuðum lit, með flottum ströppum, frekar látlaus og hönnunin þykir mér tímalaus. Efnið er það sama og í hinum sígildu Burberry frökkum og taskan gengur við flestar mínar múnderingar.

Burberry taskan. Aðsend

Ertu duglegur að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?

Ekki beint. Hin trausta Filson taska hefur safnað allskonar rusli í gegnum tíðina. Oftast birtist eitthvað óvænt þegar hún er tæmd annað slagið.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?

Alla jafna er ég bara með eina tösku út daginn sem inniheldur helstu nauðsynjar, en ég á svakalega gæjalega Filson Duffle tösku í stíl við Filson Tablet töskuna. Stundum nota ég duffle sem sundtösku eða ef ég fer í ferðalag þá þykir mér gaman að hafa þær í stíl.

Filson parið. Aðsend

Stór eða lítil taska og afhverju?

Flestar mínar töskur eru ekkert sérlega tröllvaxnar og duga mér ágætlega. Hinsvegar á ég ferlega stóra tösku undir skvassdótið mitt. Hún er eiginlega óhóflega íturvaxin og eintómt lúkk atriði enda sagði Coco Chanel: „Every day is a fashion show and the world is your runway

Skvass taskan umrædda. Aðsend

Hér má hlusta á Magnús Jóhann á streymisveitunni Spotify


Tengdar fréttir

Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum

Tískuhönnuðurinn Berglind Hlynsdóttir hannar undir nafninu Bosk og hefur vakið athygli fyrir einstakar og litríkar töskur. Það er búið að vera mikið um að vera hjá Berglindi í kringum HönnunarMars og er hún gjarnan með marga bolta á lofti en hún gaf sér tíma til þess að veita lesendum Vísis innsýn í töskuna sína í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

„Elska að hafa skipulagt kaos“

Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar stendur á tímamótum þar sem hún og kollegi hennar Magnea eru að opna nýja verslun við Hafnartorg. Þær fögnuðu opnuninni með pompi og prakt í gær og hafa síðustu dagar því verið mjög viðburðaríkir en Aníta gaf sér þó tíma til að opna tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Myndavél frá afa algjör fjársjóður

Markaðsstjórinn og tískuskvísan Maja Mist er mikið töskukona og hefur fjárfest í nokkrum hátískutöskum í gegnum tíðina. Hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu

Förðunarfræðingurinn og ofurskvísan Kolbrún Anna Vignisdóttir er vanalega alltaf með förðunarnauðsynjavörur í töskunni sinni og klikkar sömuleiðis ekki á því að vera bæði með munnskol og tyggjó. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga

Listakonan og Andrá skvísan Hulda Katarína Sveinsdóttir er alltaf með skissubók í töskunni sinni ef innblásturinn skyldi koma yfir hana. Hún fær hugmyndir á öllum tímum dagsins og er því vel búin með ýmsa skemmtilega hluti í töskunni sinni.

Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni

Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir segist ekki dugleg að halda röð og reglu í töskunni sinni og á það til að týna hlutum, þar með talið töskum. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? og opnar töskuna sína fyrir lesendum Vísis.

Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi

Það er nóg um að vera hjá Manúelu Ósk framkvæmdarstjóra Ungfrú Ísland en hún er dugleg að ferðast vegna starfs síns og er því nauðsynlegt að eiga góða tösku. Manúela Ósk er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? hér á Vísi.  

Er skipulagsfrík og tekur reglulega til í töskunni

Kírópraktorinn og smekkmaðurinn Guðmundur Birgir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi Kíró, leggur mikið upp úr því að halda góðu skipulagi á töskunum sínum. Hann er viðmælandi í liðnum Hvað er í töskunni þinni? 

Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi

Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×