Vann að vinsælli Netflix seríu
Síðastliðinn föstudag leit línan dagsins ljós og fagnaði Snædís því með opnunarhófi í Cava salnum. Hún er 23 ára gömul og byrjaði feril sinn í förðunarnámi hér heima fyrir fjórum árum. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og á meðan að sumir jafnaldrar hennar söfnuðu sér fyrir íbúð var Snædís að safna sér fyrir förðunarlínu.
„Ég varð tvítug í miðjum heimsfaraldri og ákvað að fara til London til að læra meira. Þar lærði ég almenna förðun með áherslu á kvikmynda og leikhúsförðun í virtum förðunarskóla í Camden. Kennarar og útskriftarnemar þar hafa unnið við fjölda kvikmynda sem hafa meðal annars unnið til BAFTA og Óskars verðlauna.“
Að námi loknu bjó Snædís úti í London um tíma og fékk ýmis spennandi tækifæri.
„Ég fékk meðal annars að vinna að vinsælu sjónvarsþáttaseríunni Bridgerton og The Nevers ásamt stuttmyndum og öðrum skemmtilegum verkefnum.“
Hugmyndin kviknaði í London
Hér heima starfar hún í Borgarleikhúsinu ásamt því að taka að sér ýmis förðunarverkefni að ótaldri nýrri förðunarlínu sem hún var að setja á laggirnar.
„Ég er ótrúlega stolt af afrakstrinum og það er gaman að geta boðið upp á hágæða snyrtivörur á sanngjörnu verði sem öll geta notað, sama hver húðliturinn er.
Hugmyndin að línunni fæddist einmitt þegar ég bjó úti í London.
Flestar vinkonur mínar þar koma af ólíkum uppruna og töluðu mikið um að erfitt væri að finna sér snyrtivörur sem pössuðu við sinn húðlit. Þá hugsaði ég með mér að ef þær væru að tala um að ef það væri erfitt i í London þá væri það 100% erfiðara hér á Íslandi.
Við tók tveggja ára rannsóknarvinna og leit af réttu byrgjunum og með þeirra aðstoð þróaði ég þá línu sem ég var að leitast eftir. Allar umbúðir og vörumerki hannaði ég sjálf en ég fékk fagaðila innan fjölskyldunnar til að hjálpa mér að útfæra það í núverandi mynd.
Nafnið Dewy Cosmetics kemur frá mér því ég er mjög hrifin af náttúrulegri förðun sem gefur ljóma. Dewy er þekkt orð í bransanum og þýðir einfaldlega náttúruleg og mjúk húð sem ljómar,“ segir Snædís að lokum.
Hér má hlusta á viðtal við Snædísi í Bítinu á Bylgjunni:
Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir úr opnunarteitinu:






