Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél Atli Ísleifsson skrifar 17. maí 2024 07:13 Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu þrjú til tíu stig að deginum. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð mjakast nú til austurs skammt fyrir norðan land í dag og verður áttin því suðvestlæg á landinu í dag.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að reikna megi með golu eða kalda og skúrum eða slydduéljum. Þó verður þurrt að kalla suðaustan- og austanlands fram undir kvöld Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu þrjú til tíu stig að deginum. Norðlægari vindur í kvöld og léttir til á Suðvesturlandi.„Norðlæg átt 5-13 m/s á morgun. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig, en bjart með köflum sunnan heiða og talsvert mildara yfir daginn. Þó má búast einhverjum skúrum á Suðausturlandi annað kvöld. Á sunnudag er útlit fyrir að hægfara lægð verði skammt suður af landinu. Áttin verður því austlæg, yfirleitt kaldi eða strekkingur en hvassviðri syðst. Austanáttinni fylgir rigning með köflum sunnanlands, en dálítil slydda eða jafnvel snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi. Svalt í veðri. Síðdegis bætir í úrkomu á austanverðu landinu, þar má búast við hríð á fjallvegum og þeir sem hyggja á ferðalög eru hvattir til að fylgjast með veðurspám,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðlæg átt 5-13 m/s. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig. Bjart með köflum sunnan heiða og hiti að 10 stigum yfir daginn, en stöku skúrir á Suðausturlandi undir kvöld. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Gengur í austan 8-15, en 15-23 syðst á landinu síðdegis. Úrkomulítið á Norðvesturlandi, annars rigning með köflum, en dálítil slydda norðaustantil. Hiti 1 til 8 stig. Rigning eða slydda víðast hvar um kvöldið. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Suðaustan og austan 5-13, en hvassara við norðurströndina. Víða rigning, en dregur úr vætu vestanlands eftir hádegi. Hiti 2 til 10 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða dálítil væta. Hiti 4 til 11 stig Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira