Elvar Árni sigraði Gagnaglímuna í ár Lovísa Arnardóttir skrifar 26. maí 2024 14:44 Hjalti Magnússon - formaður Gagnaglímufélagsins, Kristinn Vikar Jónsson, Samúel Arnar Hafsteinsson, Elvar Árni Bjarnason og Anton Egilsson - forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis. Aðsend Elvar Árni Bjarnason sigraði Gagnaglímuna í gær. Gagnaglíman er Netöryggiskeppni Íslands og fór fram í Háskólanum í Reykjavík í gær. Keppnin fer fram árlega og hefur það markmið að efla áhuga íslenskra ungmenna á netöryggi og auka þekkingu og færni þeirra sem sýna því áhuga.
Í keppninni er einnig valið í tíu manna lið sem tekur þátt í Netöryggiskeppni Evrópu European Cyber Security Challenge (ECSC) fyrir Íslands hönd. Í ár er keppnin haldin í Tórínó á Ítalíu. „Gagnaglíman er vettvangur sem hvetur til ástundunar á netöryggi á skemmtilegan hátt, þar sem keppendur glíma við raunhæf verkefni og líkja eftir árásaraðferðum tölvuþrjóta. Margir tengja netöryggi við staðalímyndina um „tölvunördinn“, og halda að það sé allt of flókið að komast inn í þennan heim, en það er þó alls ekki þannig,“ segir Hjalti Magnússon stjórnandi keppninnar og að færni í netöryggi snúist að mestu um skapandi hugsun, eða að hugsa út fyrir kassann. „Svo má ekki gleyma að það sama á við um netöryggi og allt annað sem maður tekur sér fyrir hendur að færni krefst bara áhuga og ástundunar,“ segir Hjalti. Keppnin fór fram í gær í Háskólanum í Reykjavík. Aðsend Samtals tóku 16 keppendur þátt í ár. Þrír í yngri flokki, 14-20 ára, og þrettán í eldri flokki, 21-25 ára. Elvar Árni Bjarnason sigraði keppnina í ár með 6840 stigum. Samúel Arnar Hafsteinsson var í öðru sæti með 4836 stig og Kristinn Vikar Jónsson var í þriðja sæti með 3421 stig. Matthías besti nýliðinn Besti nýliðinn í yngri flokki var Matthías Andri Hrafnkelsson og besti nýliðinn í eldri flokki var Haraldur Jón Friðriksson. Verðlaun fyrir bestu frammistöðu í staðbundnum verkefnum hlaut Elvar Árni Bjarnason. Verkefni keppninnar eru af ýmsum toga, en snúast í flestum tilfellum í að notfæra sér öryggisveikleika í tölvukerfum. Meirihluti keppenda voru strákar miðað við þessa mynd. Aðsend Þau geta falið í sér að notfæra sér galla í hugbúnaði, eins og vefsíðum eða forritum eða að brjóta óörugga dulkóðun. Aðferðirnar sem keppendur beita eru í raun þær sömu og hakkarar beita við árásir á raunverulegum tölvukerfum. Verkefnin eru öll smíðuð af dæmahöfundum keppninnar og keyrð í einangruðu umhverfi, þannig keppnin felur ekki í sér árásir á neinn hugbúnað sem er í raunverulegum rekstri.
Rafíþróttir Háskólar Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti