„Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 5. júní 2024 11:31 Kári Egilsson frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið In The Morning. Vísir/Vilhelm „Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum.
Hér má sjá tónlistarmyndbandið við lagið In The Morning: Eftirtaldir komu að gerð myndbandsins: Leikstjórn: Ernir Ómarsson. Aðstoðarleikstjórn: Matthías Kristinsson Schram. Klipping: Ernir Ómarsson og Matthías Kristinsson Schram. Upptökustjórn: Svava Lovísa Aðalsteinsdóttir. Aðstoð við upptökur: Úlfur Arnalds. Ljós: Breki Hrafn Ómars. Runner: Björn Óttar Oddgeirsson. Smink: Victoría Lazar Sorinsdóttir. Hlakkar til að komast í smá frí Kári hefur komið fram á tónleikum hérlendis og erlendis síðastliðna mánuði. „Ég var svo valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum sem var mikill heiður.“ Hann segir að verðlaunin hafi verið mjög kærkomin þó að það hafi verið smá yfirþyrmandi að meðtaka þau. Samhliða giggunum er Kári að vinna að nýrri plötu og hefur nú þegar gefið út nokkur lög af henni. „Ég er búinn að vera að vinna mikið og ég hlakka til að komast út í smá frí í sumar. Þetta er svolítið mikið hark, mikið sem þarf að hugsa um eins og útgáfa, tónleikahald og upptökur. Það er margt sem maður kannski áttar sig ekki á fyrst en þetta er lærdómsríkt og skemmtilegt.“ Kári hefur komið víða að í tónlistinni.Saga Sig Einmanaleiki, vanlíðan og gleði Tónlistarmyndbandið hér að ofan fylgir að sögn Kára þema lagsins. „Þetta fjallar svolítið um vanlíðan á morgnana og meiri skemmtun á kvöldin. Ég byrja á að vakna einn og einmana, fer að spila á píanóið og svo um kvöldið kemur hljómsveitin til mín og er að fíflast með mér, við borðum pizzu og höfum gaman. Það passar vel við þemað,“ segir Kári brosandi. „Að einhverju leyti byggi ég tónlistina á minni reynslu og maður tæklar ýmislegt á gamansaman hátt. Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar og stundum slæmar. Það er góð reynsla,“ segir Kári og bætir við að framan af hafi hann verið í jazzinum þar sem það eru engir textar. „Það er svolítið gott að geta tjáð sig í gegnum texta og það eru nokkrir textar á nýju plötunni sem díla við sammannlegar tilfinningar á borð við einmanaleika, vanlíðan og auðvitað líka gleði inni á milli. Ég reyni að hafa jafnvægi í þessu.“ Kári reynir að halda jafnvægi á tilfinningum í textum sínum.Aðsend Forðast beinan innblástur Hann á sér uppáhalds lag á plötunni sem er óútgefin kraftmikil ballaða og segist hann hlakka mikið til að gefa plötuna út. Aðspurður hvaðan hann sæki innblásturinn svarar Kári: „Þegar að ég er að semja og taka upp forðast ég að hafa beinan innblástur en ég reyni að kynna mér tónlist, bæði gamla og nýja, og maður fær auðvitað innblástur þaðan. Þegar að það kemur að því að taka upp forðast maður samt að stæla eitthvað ákveðið.“ Hann segist hlusta meira á tónlist þessa dagana þar sem hann er ekki á fullu í upptökum. „Þegar að maður er búinn að vera að taka upp alla daga og koma fram þá þarf maður að hvíla eyrun aðeins. Mér finnst sömuleiðis gott að slaka á inn á milli, horfa á góða mynd eða fara í frí einstaka sinnum og ferðast.“ Kára finnst gaman að vinna hörðum höndum að tónlistinni og taka sér svo kærkomin frí.Aðsend „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Kári fer á hverju sumri með fjölskyldu sinni til eyjunnar Folegandros á Grikklandi. „Ég hef farið þangað síðan að ég var eins árs og þekki eiginlega alla á eyjunni. Það er yndislegur staður og þetta er lítil eyja, maður þekkir vel til þar.“ Samhliða væntanlegu og kærkomnu fríi er nóg á döfinni hjá honum. „Er að vinna að nýrri plötu, útgáfutónleikum og vonandi fleiru. Ég hlakka sömuleiðis til að fara á fleiri svokallaðar showcase hátíðir erlendis. Ég var í einmitt í Brighton í Englandi fyrir tveimur vikum á svoleiðis hátíð sem heitir Great Escape. Það var heilmikil reynsla, engin hljóðprufa og maður varð að demba sér svolítið í djúpu laugina. Við mættum á tengslamyndunarfundi að hitta bransafólk og það er kannski pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann en maður verður að koma sér inn í þetta og þetta er mjög lærdómsríkt.“ View this post on Instagram A post shared by Kári Egils (@kari.egils) Elskar að koma fram Kári segist njóta sín vel á sviðinu. „Ég elska það, mér finnst eins og áhorfendurnir gefi mér kraft og ég verð í rauninni ekkert stressaður. Mér finnst líka með aukinni reynslu af tónleikahaldi síðastliðið ár að ég hafi batnað sem performer og hljómsveitin hefur náð að slípast vel saman. Þetta er heilmikið rót og skipulag.“ Að lokum segist Kári spenntur fyrir framhaldinu og er óhræddur við að vera í stöðugri þróun. „Ég er mjög spenntur fyrir næstu plötu og mér finnst svolítið þróaðri en sú fyrri og jafnvel betri og enn nútímalegri. Ég er búinn að þroskast af ferlinu og læra betur á stúdíóið og sömuleiðis erum við Albert Finnbogason farnir að vinna enn betur saman en hann gerði líka fyrstu plötuna með mér.“ Hér má hlusta á Kára Egils á streymisveitunni Spotify og hér á Youtube.
Tónlist Menning Mest lesið Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Lífið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Jay Leno illa leikinn og með lepp Lífið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Gagnrýni „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira