Tónlist

Scooter til landsins með risatónleika í Laugar­dals­höll

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
H. P. Baxxter í Scooter treður upp í Laugardalshöll í október.
H. P. Baxxter í Scooter treður upp í Laugardalshöll í október. Frank Hoensch/Redferns/Getty

Þýska teknósveitin Scooter er á leið til landsins og mun koma fram á tónleikum í Laugardalshöll föstudagskvöldið 18. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum tónleikanna í Nordic Live Events.

Þar kemur fram að sjóðheitir íslenskir tónlistarmenn muni hita upp fyrir sveitina. Þetta er ekki fyrsta skiptið sem sú þýska kemur fram hér á landi en árið 2019 kom sveitin fram á risatónleikum í Laugardalshöll.

Hitaði Egill Einarsson, DJ Muscleboy upp við það tilefni en athygli vakti þegar slökkt var snemma á tónlist kappans. Til stóð að sveitin kæmi aftur hingað til lands að spila í Laugardalshöll árið 2021 en ekkert varð úr vegna heimsfaraldurs.

Íslensku tónlistarmennirnir sem munu hita upp fyrir þýsku sveitina að þessu sinni eru Herra Hnetusmjör, Patr!k, DJ Gústi B og Micka Frurry. DJ Picco mun síðan setja tóninn fyrir H.P. Baxxter og félaga í Scooter. Fram kemur í tilkynningunni að miðasalan muni hefjast á föstudaginn klukkan tíu á midix.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.