Allt að tuttugu stiga hiti sunnanlands Árni Sæberg skrifar 29. júní 2024 08:13 Í dag viðrar vel til langsetu utandyra, til dæmis við Austurvöll. Vísir/Vilhelm Veðurstofa Íslands spáir rjómablíðu sunnanlands í dag en að rigna byrji sunnan- og vestanlands strax á morgun.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að lægðin austur af landinu fjarlægist nú smám saman og dragi úr vindi og úrkomu á austanverðu landinu og gular viðvaranir séu að renna út núna í morgunsárið. Austanlands hafi mælst norðvestan hvassviðri eða stormur, en mesti vindhraði hafi mælst þrjátíu metrar á sekúndu í Papey í gær og hviður hafi farið yfir fjörutíu metra á sekúndu. Á eftir lægðinni komi skammlífur hæðarhryggur inn á landið seinna í dag með björtu og hægu veðri víða og allt upp í tuttugu stiga hita sunnanlands. Hryggurinn ætli þó að staldra stutt við því næsta lægð nái landi á morgun úr vestri og byrji að rigna sunnan- og vestanlands. Þó verði víða bjart veður norðaustantil og hiti upp í 22 stig þar. Eftir svalan norðvestanvindinn með rigningu og jafnvel slyddu síðasta sólarhringinn verði því mikill viðsnúningur fyrir íbúa og gesti Norðausturlands um helgina.
Veður Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Sjá meira