Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum Þórarinn Þórarinsson skrifar 4. september 2024 14:38 Ásmundur Viggósson, Pandaz, færði sig frá Dusty yfir í Þór og var í miklu stuði með nýja liðinu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar þegar Þór hafði betur en Saga í Counter Strike í gærkvöld. „Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld.
Lið Þórs og Sögu mættust í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld þar sem Þór stóð uppi sem sigurvegari í seríunni 2-1. Þór hafði betur í Anubis (13-5) en Saga í Dust2 (13-9) áður en Þór náði vopnum sínum aftur og lagði andstæðinginn (13-8) í Nuke. „Ég var soldið mikið bara hlaupandi út um allt og mölvandi allt og alla, nema í leik tvö,“ segir Ásmundur sem er betur þekktur undir nikkinu Pandaz sem hann gegnir á vígvellinum. Það er því óhætt að segja að Ásmundur, sem, spilaði fyrir NOCCO Dusty á síðasta tímabili, hafi mætt funheitur til leiks með Þór í gær enda um ákveðna endurkomu að ræða. „Fyrsta tímabilið mitt í úrvalsdeildinni var í Þór þannig að maður er smá kominn heim bara,“ segir Ásmundur sem er fæddur 2003 og var ellefu ára þegar hann byrjaði að spila Counter Strike 2014. Ásmundur segir aðspurður að ýmsar ástæður hafi verið fyrir því að hann ákvað að skipta yfir í Þór núna en lið NOCCO Dusty hefur stórmeistaratitil að verja og hefur verið í fremstu röð um árabil enda þekkt fyrir að setja mikinn metnað og æfingu í leikinn. „Maður þurfti að fórna miklum frítíma þegar maður var í Dusty og svo er liðið bara búið að taka það miklum breytingum að það var í rauninni ekki sama liðið og ég byrjaði með,“ segir Ásmundur og bætir við að þetta hafi bara verið rétti tíminn til að skipta. Beinar útsendingar Sjónvarps Símans í allan vetur Sjónvarp Símans sýnir í vetur beint frá sjö deildum Rafíþróttasambands Íslands en þetta eru: Ljósleiðaradeildin í Counter Strike, ELKO-deildin í Fortnite, Tölvulistadeildin í Overwatch, Míludeildin í Valorant kvenna, Kraftvéladeildin í Dota 2, GR Verk deildin í Rocket League og Íslandsmót Símans í netskák.
Tengdar fréttir Einbeittur sigurvilji hjá nýliðunum í Ljósleiðaradeildinni Rafíþróttadeild Keflavíkur, Rafik, mætir til leiks í Ljósleiðaradeildinni í fyrsta sinn eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í Counter Strike 2 í 1. deild. 27. ágúst 2024 13:24 Mest lesið „Það er erfitt að loka mótum strákar“ Fótbolti „Þetta er fokking Valur-KR og ef menn fá ekki að kljást í þeim leik þá er eitthvað að“ Sport Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott Fótbolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Víkingur- 0-6 | Miskunnarlausir Víkingar á toppnum Íslenski boltinn Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt Sport Arnar: Hleyptum þeim sjaldan úr skotgröfunum Fótbolti Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Enski boltinn Kristian Nökkvi metinn á tæplega tvo og hálfan milljarð Fótbolti Undrabarnið Endrick giftur eftir innan við árs samband Fótbolti Fleiri fréttir Klutz réði ekkert við GoldDiggers Dusty enn á toppnum eftir tvær umferðir Metþátttaka í kvennadeildinni í Valorant Bestu hakkavélarnar byrja mótið sem þjálfarar Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum Spennan magnast í Fortnite-samfélaginu Tölvuleikir auðvelda krökkum að kynnast og upplifa sögur Stærðin og áhorfið eru leynivopn Counter Strike Fólk á öllum aldri keppir í Fortnite Einbeittur sigurvilji hjá nýliðunum í Ljósleiðaradeildinni Gríðarlegar sviptingar á undanmóti Íslandsmótsins í netskák Ljóngrimmir keppendur mætast á Íslandsmótinu í netskák Háhraðahressleiki og hugsjónaorka hjá Next Level Gaming Sjá meira
Einbeittur sigurvilji hjá nýliðunum í Ljósleiðaradeildinni Rafíþróttadeild Keflavíkur, Rafik, mætir til leiks í Ljósleiðaradeildinni í fyrsta sinn eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í Counter Strike 2 í 1. deild. 27. ágúst 2024 13:24
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum Íslenski boltinn
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum Íslenski boltinn