Slær sums staðar í storm norðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 5. september 2024 07:10 Það er orðið frekar haustlegt um að litast í höfuðborginni. Vísir Veðurstofan spáir hvassri suðvestanátt og að sums staðar slái í storm þar sem hvassast verður á norðvestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á norðanvestanverðu og norðanverðu landinu fram á kvöld.
Gera má ráð fyrir að vindur geti farið í 30 til 35 metra á sekúndu á stöku stað. Á vef Veðurstofunnar segir að með kvöldinu fari svo að lægja en að vindáttin verði svipuð fram á laugardag. „Þeir sem verða á ferðinni á bílum sem taka á sig mikinn vind eða með aftanívagna þurfa að íhuga hvort fresta eigi ferðalögum þar til það versta er yfirstaðið. Gular viðvaranir eru í gildi norðantil á landinu. Hvassast verður norðvestantil.Veðurstofan Einhver væta, einkum í formi skúra mun verða viðvarandi sunnan- og vestantil á landinu og þá má reikna með hita á bilinu 8 til 12 gráður, en um landið norðaustanvert verður mun bjartara yfir og hiti á bilinu 12 til 18 stig og jafnveg gætum við séð tölur um og yfir 20 stigin þegar best lætur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og súld með köflum, en hvessir og fer að rigna vestantil um kvöldið. Hægari vindur og léttskýjað austanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á laugardag: Suðvestan 8-15 m/s, skýjað með köflum og líkur á smáskúrum á Suður- og Vesturlandi, en annars bjartviðri. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir austan. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt og rigning með köflum á norðanverðu landinu, en stöku skúrir syðra. Kólnandi veður. Á mánudag og þriðjudag: Ákveðin norðanátt og skúrir eða slydduél norðan- og austanlands, en annars bjartviðri. Hiti 2 til 10 stig að deginum, mildast syðst. Á miðvikudag: Útlit fyrir áframhaldandi kalda norðanátt með úrkoma fyrir norðan en björtu veðri syðra.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira