Þurrt og bjart nokkuð víða Atli Ísleifsson skrifar 12. september 2024 07:16 Hiti veður á bilinu fimm til tólf stig í dag. Vísir/Vilhelm Sérfræðingar Veðurstofunnar segja útlit fyrir þurru og björtu veðri nokkuð víða í dag þó að lítilsháttar skúrir gætu látið á sér kræla við Breiðafjörð, á Faxaflóa, á Reykjanesi og jafnvel vestantil á Suðurlandi einnig.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðir fyrir norðaustan og austan land hafi beint til okkar fremur kaldri norðanátt að undanförnu og eru þær ekki alveg úr sögunni og munu valda norðvestan strekkingi á austanverðu landinu í dag, en vestantil verður vindur hægari. Gera má ráð fyrir hita á bilinu fimm til tólf stig yfir daginn þar sem verður mildast sunnanlands. Kólnar í kvöld og allvíða vægt frost í nótt. „Á morgun hafa lægðir fjarlægst og við sitjum milli lægða í tiltölulega rólegu veðri og sólríkt víða um land. Annað kvöld nálgast hins vegar næsta lægð úr suðri. Þá fer að blása hressilega syðst á landinu og fer að rigna þar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað. Hiti 4 til 12 stig yfir daginn, hlýjast á Suðurlandi. Vaxandi austanátt sunnanlands um kvöldið og fer að rigna þar. Á laugardag: Austan og norðaustan 13-20, en hægari vindur eftir hádegi. Rigning víða um land. Hiti 3 til 14 stig, svalast í innsveitum fyrir norðan, en mildast við suðurströndina. Á sunnudag: Norðan og norðvestan 8-15 og rigning eða slydda, en yfirleitt þurrt á sunnanverðu landinu. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á mánudag: Breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 5 til 10 stig að deginum, en allvíða næturfrost. Á þriðjudag: Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna, fyrst sunnanlands. Heldur hlýnandi. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða væta, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast austast.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira