Leikjavísir

Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær

Samúel Karl Ólason skrifar
Sprenging

Forsvarsmenn Sony héldu í gær State of Play kynningu þar sem farið var yfir margt af því helsta sem vænta má frá fyrirtækinu á komandi mánuðum. Kynntir voru nýir leikir en margir þeirra eru sýndarveruleikaleikir og sömuleiðis aukapakkar fyrir leiki sem þegar er búið að gefa út.

Það helsta sem stóð upp úr var fyrsta stikla leiksins Ghost of Yotei, sem er framhaldsleikur hins frábæra Ghost of Tsushima.

Áhugasamir geta horft á alla kynninguna hér en hér að neðan verður stiklað á stóru yfir það helsta sem kynnt var.


Ghost of Yotei

Starfsmenn Sucker Punch hafa unnið hörðum höndum að framhaldi leiksins Ghost of Tsushima, sem kom út árið 2020. Þessi leikur gerist árið 1603, mun seinna en fyrri leikurinn, og fjallar um nýjan draug sem ber nafnið Atsu.

Þá gerist leikurinn á svæðinu kringum fjallið Yotei í Japan og inniheldur fjölbreytt landslag. Þá bendir stiklan einnig til þess að vopn leiksins verði fjölbreyttari en í fyrri leiknum.

Ghost of Yotei kemur út á næsta ári.


Hell Is Us


Palworld


Dynasty Warriors: Origins


Towers of Aghasba


Dragon Age: The Veilguard


Monster Hunter Wilds


Horizon Zero Dawn Remastered


Lego Horizon Adventures


Astro Bot DLC


Alan Wake 2: The Lake House


Legacy of Kain: Soul Reaver 1 and 2 Remastered


ArcheAge Chronicles


Hér að neðan má sjá stiklur fyrir nokkra sýndarveruleikaleiki. Þar á meðal er leikur um Agent 47 og Metro-leikur.


The Midnight Walk


Metro Awakening


Hitman: World of Assassination

Nýtt útlit fyrir PlayStation 5






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.