Lífið

Prestur og brauðterta í tíu þúsund manna fermingar­veislu FM95BLÖ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þann 31. maí fer fram fermingarveisla FM95BLÖ.
Þann 31. maí fer fram fermingarveisla FM95BLÖ.

Fermingarveisla FM95BLÖ verður haldin á næsta ári. Útvarpsþátturinn er að verða fjórtán ára og því tilvalið að skella í fermingu.

Miðasalan á tónleikana hófst á Tix í morgun. Sindri Sindrason hitti þremenningana í Laugardalshöllinni í Íslandi í dag í vikunni.

„Við héldum tíu ára afmælið okkar hérna hinum megin en núna ætlum við að reyna stækka þetta og vera með fermingarveislu í stóru höllinni,“ segir Auðunn Blöndal forsprakki hópsins.

„Ef það hefði einhver sagt við mig 2011 að þátturinn yrði fjórtán ára þá hefði ég aldrei trúað því,“ segir Auddi.

„Við höfum aldrei tekið okkur pásu, hætta og byrja aftur eins og margir gera. Við bara mætum alltaf, alla föstudaga,“ segir Egill Einarsson.

„Ég er mikill afmælismaður en þetta er í annað sinn sem ég held upp á fermingu, sem er mjög gaman,“ segir Auðunn og hlær.

„Við erum með einn vinsælasta plötusnúð heims með okkur, aldrei komið til Íslands og kemur alla leið frá Ástralíu. Ég hef séð hann fjórum sinnum áður en Íslendingar hafa aldrei séð hann,“ segir Egill en Timmy Trumpet verður á sviðinu umrætt kvöld en Herra Hnetusmjör, Jóhanna Guðrún, Sverrir Bergmann og Doctor Victor verða einnig á tónleikunum 31. maí.

„Við eigum eftir að tilkynna fleiri nöfn þegar nær dregur en við erum með nokkra gullmola í pokahorninu,“ segir Auddi.

„Það verður stór brauðterta, prestur og svo er ég að reyna fá það í gegn hjá strákunum að vera með ristað brauð til sölu, þetta er jú ferming,“ segir Steindi sem mætti allt of seint í viðtalið eins og honum er lagið.

„Fólk fattar ekki að ef ristað brauð væri ekki þekkt sem svona venjulegur morgunmatur þá væri þetta þrjá tíu þúsund króna réttur á veitingastað, þetta er það gott,“ segir Steindi en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.