Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2024 07:12 Hiti verður á bilinu átta til þrettán stig í dag. Vísir/Vilhelm Hæðarhryggur fer austur yfir landið í dag og dregur smám saman úr vindi og úrkomu.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að gera megi ráð fyrir suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu síðdegis og björtu með köflum um mest allt land. „Síðan kemur næsta lægð undir kvöld með vaxandi suðaustanátt og rigning sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 13 stig, svalast á Vestfjörðum. Á morgun verður stíf suðaustanátt, einkum vestantil. Rigning eða súld með köflum, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Hiti 8 til 13 stig. Svo bætir í rigningu á sunnanverðu landinu um kvöldið. Á miðvikudag kemur nýr hæðarhryggur yfir landið og þá skánar veðrið. Minnkandi suðvestanátt, 5-13 m/s síðdegis, hvassast norðvestantil. Dálítlar skúrir eða slydduél á Vestfjörðum en annars yfirleitt bjart. Hiti 2 til 7 stig. Þá um kvöldið kemur enn önnur lægð upp að landinu frá suðri. Vaxandi austanátt, rigning eða súld og hlýnar á sunnanverðu landinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðaustlæg átt 10-18 m/s, hvassast vestantil. Rigning eða súld, en lengst af þurrt á norðanverðu landinu. Talsverð úrkoma sunnanlands um kvöldið. Hiti 6 til 12 stig. Á miðvikudag: Suðlæg átt 8-13 og bjart með köflum, en stöku skúrir á norðanverðu landinu framan af degi. Gengur í austan 10-18 um kvöldið, með rigningu sunnanlands og slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Kólnandi veður, hiti 0 til 6 stig seinnipartinn. Á fimmtudag: Vestan og suðvestan 13-20 og skúrir, en norðaustanátt með éljum á Vestfjörðum. Úrkomulítið norðaustantil. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Kólnandi veður. Á föstudag: Austlæg átt og lítilsháttar rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti um frostmarki en allt að 5 stigum við suðurströndina. Hvessir með rigningu og hlýnar sunnanlands um kvöldið. Á laugardag: Suðlæg átt og skýjað. Víða dálítil væta, en bjart að mestu norðaustantil. Vaxandi austanátt með rigningu um kvöldið, en slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast syðst á landinu. Á sunnudag: Útlit fyrir hvassa suðvestanátt með rigningu víða um land, en snjókomu norðvestantil.
Veður Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Fleiri fréttir Gæti náð 24 stigum þar sem best lætur „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Hiti á bilinu tíu til 18 stig í dag Allt að tuttugu stiga hiti á Norðausturlandi Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Gular viðvaranir og hryssingslegt sunnan- og vestantil Vindur, skúrir og kólnandi veður Mögulegt að hitinn fari í tuttugu stig í fyrsta sinn í ár Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Strekkingur og væta suðvestanlands en allt að 17 stig fyrir austan Sólríkt og fremur hlýtt í dag Skýjað og rigning af og til Hiti gæti náð fimmtán stigum Styttir víða upp og kólnar Von á allhvössum vindi og rigningu Gengur á með skúrum sunnan- og vestanlands Útlit fyrir þokkalegt veður Hægfara lægð yfir landinu Víða væta með köflum en rigningin samfelld á Suðausturlandi Bjart veður víðast hvar en víða frost í nótt Bjart suðvestantil en skýjað fyrir norðan og austan Víða bjart yfir landinu í dag Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Norðan kaldi eða stinningskaldi í dag Hæglætisveður um páskana Snjókoma eða slydda norðan- og austantil Misstu bílinn af veginum og þorðu ekki að bíða í honum Rigning í flestum landshlutum og kaldara loft Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Sjá meira