Viðskipti innlent

Ráðinn fram­kvæmda­stjóri Marel Fish

Atli Ísleifsson skrifar
Skúli Sigurðsson.
Skúli Sigurðsson. Marel

Skúli Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish, sem ber ábyrgð á vöruþróun, sölu, framleiðslu og þjónustu fyrir viðskiptavini Marel í fiskiðnaði.

Í tilkynningu frá Marel segir að með ráðningunni undirstriki Marel á ný sterka tengingu sína við íslenska fiskiðnaðinn og markmið sitt um að leiða þróun í greininni, bæði á Íslandi og á alþjóðavísu. 

„Marel er staðráðið í að vera áfram leiðandi afl í greininni með sterka áherslu á nýsköpun, framúrskarandi þjónustu og aukið samstarf við viðskiptavini.

Skúli hefur yfir 20 ára reynslu af því að leiða tækni- og viðskiptaþróun innan matvælaiðnaðarins. Undanfarin ár hefur hann að mestu unnið að samþættingu nýrra fyrirtækja innan Marel og stýrt umfangsmiklum verkefnum í Þýskalandi, Danmörku og Bandaríkjunum. Marel er stolt að nýta þessa þekkingu og krafta Skúla til að styrkja Marel Fish og efla framtíðarlausnir í fiskvinnslu, ásamt því að byggja áfram á traustu sambandi við viðskiptavini greinarinnar,“ segir í tilkynningunni.

Þar er haft eftir Skúla að hann sé spenntur fyrir verkefninu. „Rætur Marel liggja í fiskiðnaðinum, og ég er stoltur að leiða þetta svið. Næstu skref verða að byggja á þeim trausta grunni sem fyrir er og færa fiskiðnaðinn á næsta stig, í nánu samstarfi við okkar viðskiptavini,“ segir Skúli.

Um Marel segir að það sé í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.300 starfsmenn í yfir 30 löndum (þar af um 750 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini í yfir 140 löndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjöts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×