Lífið

Frægt fólk og feimnir karlar leita til Val­gerðar spá­konu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Valgerður Bachmann, spákona og miðill.
Valgerður Bachmann, spákona og miðill.

Valgerður Bachmann, spákona og miðill, hefur unnið í andlegum málefnum í næstum tvo áratugi. Hún segir alls konar fólk sækja þjónustu hjá henni; þekkt fólk og óþekkt, gamalt og ungt. Þá sæki karlar einnig mikið í spádóma en fari gjarnan krókaleiðir að því.

Við kynntum okkur tiltekinn kima andlega heimsins í Íslandi í dag á mánudag. Við heimsóttum meðal annars Valgerði í bílskúr í úthverfi höfuðborgarsvæðisins og fengum hana að spá fyrir fréttamanni, yfirlýstri efasemdamanneskju. En áður en Valgerður las í framtíð undirritaðrar skyggndumst við inn í fortíð hennar. 

„Ég byrjaði 2009 að vinna við andleg málefni. Þegar ég var lítil þá sá ég mikið og heyrði,“ segir Valgerður.

Þegar þú segir að þú hafir séð og heyrt, ertu að meina að þú sért skyggn? 

„Já. Ég bæði átti erfitt með svefn, átti erfitt með að vera til dæmis í Habitat í Holtagörðum og bjó í húsi í Hafnarfirði þar sem var ansi mikið af fólki. Það var mitt tráma í lífinu, í æsku, og þorði ekki að deila því með neinum, var hrædd um að ég yrði talin geðveik eða eitthvað,“ segir Valgerður.

Hvernig fólk leitar til þín? 

„Allskonar. Bæði fólk sem er þekkt, sem er ekki þekkt, börn, unglingar, allur skalinn. Ég stundum veit ekkert hvaða fólk er að panta tíma, það pantar í tölvupósti. Ég sé það fólk aldrei. Stundum kemur fólk og segir: Ég hef fengið [spá] hjá þér! Og ég er bara: Já, geggjað!“

Hvernig eru kynjahlutföllin? 

„Í sannleika sagt þá lítur það þannig út að konur sæki meira í þetta en það er ekki rétt. [Karlar] fara krókaleiðina, sækja mikið í spá í tölvupósti,“ segir Valgerður.

Horfa má á þáttinn í heild í spilaranum hér fyrir ofan. Við ræðum ítarlega við Valgerði, fáum hana til að spá fyrir okkur og göngumst undir svokallaða „orkugreiningu“, eitt það nýjasta í andlega heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.