Orri skoraði jöfnunarmark en tókst ekki að gera það aftur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Orri skoraði jöfnunarmarkið eftir að Sociedad lenti undir og fékk svo tækifæri til að jafna leikinn aftur í uppbótartíma. 
Orri skoraði jöfnunarmarkið eftir að Sociedad lenti undir og fékk svo tækifæri til að jafna leikinn aftur í uppbótartíma.  Cesar Ortiz Gonzalez/Soccrates/Getty Images

Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrir Real Sociedad í heimsókn til Viktoria Plzen í Tékklandi. Leiknum lauk þó með 2-1 sigri Plzen eftir óvænt sigurmark varamanns á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Prince Kwabena Abu kom heimamönnum Plzen yfir í upphafi leiks. Markið var skorað með þéttingsföstu skoti á nærstöngina á 13. mínútu eftir stoðsendingu Pavel Sulc.

Gestirnir frá Sociedad voru þó mun hættulegri aðilinn, héldu betur í boltann og sköpuðu fleiri færi.

Orri Steinn jafnaði svo metin fyrir þá á 35. mínútu með fínni kollspyrnu sem hann fleytti í fjærhornið eftir fyrirgjöf Mikel Oyarzabal.

Áfram ógnuðu gestirnir meira en gekk illa að koma boltanum í netið þrátt fyrir margar tilraunir.

Þvert gegn gangi leiksins tókst heimamönnum svo að skora á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Daniel Vasulin var þar á ferð, rétt eftir að hafa komið inn af varamannabekknum, og skoraði með sinni fyrstu snertingu.

Orri Steinn fékk fínt færi til að jafna leikinn aftur í uppbótartíma en náði ekki nægilega vel til boltans og hitti ekki á markið með skallanum.

Heimamenn héldu út og unnu 2-1. Þetta var þeirra fyrsti sigur eftir jafntefli í fyrstu þremur leikjunum. Sociedad er sömuleiðis með fjögur stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira