Lífið

Stóð ekki á svörum um vand­ræða­legasta augna­blikið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Arnar var duglegur að munda flöskuna utan um sterkustu sósuna í þættinum.
Arnar var duglegur að munda flöskuna utan um sterkustu sósuna í þættinum. Vísir/Vilhelm

Arnar Þór Jónsson formaður Lýðræðisflokksins segir það vera alvöru verkefni að fara tvisvar sinnum í framboð á einu ári. Hann er eini leiðtogi stjórnmálaflokkanna sem hefur mætt áður í Af vængjum fram og tók áskoruninni um að borða bara sterkustu sósuna.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fimmta þætti Af vængjum fram, þangað sem stjórnmálaleiðtogar mæta í aðdraganda kosninga og gæða sér á vængjum með sterkri sósu. Arnar Þór ræðir þar meðal annars hvernig var að stilla fólki upp á lista á skömmum tíma og veru eiginkonu sinnar þar Hrafnhildar Sigurðardóttur.

Hann rifjar upp vandræðalegasta augnablikið í kosningabaráttunni, nefnir líka uppáhalds lagið sitt og svarar hraðaspurningum, meðal annars ríða-drepa-giftast en Arnar segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda sem fylgi þeirri spurningu.

Klippa: Af vængjum fram - Arnar Þór Jónsson

Tengdar fréttir

Af vængjum fram: Ekki viss um að hann myndi þekkja lyktina af hassi

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segist ekki vera viss um að hann þekki hasslykt enn þann dag í dag. Hann segist aldrei taka verkjatöflur en er hrifinn af D-vítamíni. Þá er Arnar mikill sjósundskappi og hræðist ekki að taka umræðuna.

Ríða, drepa, giftast setti Ingu í ómögulega stöðu

Inga Sæland formaður Flokks fólksins mætir með eigin hanska og bakflæðistöflur til þess að takast á við sterkar sósur. Hún segir bragðið minna sig mest á lagið Hot Stuff með Donnu Summer og gefur lítið fyrir hraðaspurningarnar.

Tæki Brynjar Níels með í bústaðinn

Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðtogi Sósíalistaflokksins segist spennt að kynnast nokkrum þingmönnum fari svo að hún komist á þing. Hún segir að líklega væri best að bjóða einum þingmanni úr öllum flokkum í sumarbústaðarferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.