Viðskipti innlent

Tóku fyrstu skóflu­stunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Birna Ingimundardóttir, Amelía Ósk Hjàlmarsdóttir, Valgerður Friðriksdóttir og Heiðrún Lind Marteinsdóttir munduðu skóflurnar.
Sigríður Birna Ingimundardóttir, Amelía Ósk Hjàlmarsdóttir, Valgerður Friðriksdóttir og Heiðrún Lind Marteinsdóttir munduðu skóflurnar. First Water

Fyrstu skóflustungurnar að nýju vinnsluhúsi landeldisfyrirtækisins First Water voru teknar á Laxabraut 19 í Þorlákshöfn í fyrradag. Þegar vinnsluhúsið rís verður það eitt stærsta vinnsluhús landsins, alls 30.500 fermetrar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að þær Amelía Ósk Hjálmarsdóttir stöðvarstjóri, Sigríður Birna Ingimundardóttir verkefnastjóri og Valgerður Friðriksdóttir mannauðsstjóri hafi mundað skóflurnar fyrir hönd First Water, en á fjórðu skóflunni hafi verið Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.

115 manna vinnustaður 

Stefnt sé að því að vinnsluhúsið verði tekið í notkun haustið 2026. Full starfsemi verði í húsinu alla daga ársins og allur tæknibúnaður verði háþróaður og hinn vandaðasti.

Vinnsluhúsið verður stórt.First Water

„Þegar starfsemin verður komin á fullt verða um 115 manns við vinnslu í húsinu og stefnt er að því að allur okkar fiskur fari þarna í gegn. Það skiptir okkur miklu máli að hafa sem mest af starfseminni í Þorlákshöfn og því er þetta stórt skref fram á við og ég hlakka mikið til að sjá húsið rísa og verða tekið í notkun,“ er haft eftir Valgerði Friðriksdóttur, mannauðsstjóra First Water.

120 milljarða fjárfesting

Alls þrjú hundruð manns muni koma til með að starfa hjá fyrirtækinu frá árinu 2029 en heildarfjárfesting First Water í Þorlákshöfn sé áætluð um 120 milljarðar króna.

„Við stefnum hátt og komumst þangað með því að vanda til verka og hafa óbilandi trú á verkefninu og löngun til að vinna það vel. Landeldi á svo mikið inni og við ætlum að gera allt okkar til að sýna fram á það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×