Veður

Hvasst og víða rigning eða slydda sunnan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu núll til fimm stig sunnan- og vestantil, en minnkandi frost fyrir norðan og austan.
Hiti verður á bilinu núll til fimm stig sunnan- og vestantil, en minnkandi frost fyrir norðan og austan. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan 10 til 18 metrum á sekúndu í dag, en heldur hægari norðanlands framan af degi.

Spáð er rigningu eða slyddu á sunnanverðu landinu, en úrkomuminna fyrir norðan.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði núll til fimm stig sunnan- og vestantil, en minnkandi frost fyrir norðan og austan. Lægir og kólnar sunnanlands síðdegis með snjókomu en styttir upp þar í kvöld.

„Á morgun verður breytileg átt 5-10 m/s, en suðaustan 10-18 norðanlands framan af degi og gengur í austan 8-13 austantil seinnipartinn. Það verður dálítil snjókoma eða slydda öðru hverju í flestum landshlutum, en úrkomuminnst verður á suðvesturhorninu. Hiti yfirleitt nálægt frostmarki, en frost 1 til 6 stig inn til landsins.

Á laugardag verður breytileg átt 3-8, en norðvestan 5-13 á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis. Rigning eða slydda af og til um mest allt land. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Austlæg átt 8-13 m/s á austurhelmingi landsins og snjókoma eða slydda með köflum. Hægari vindur og úrkomulaust vestantil, en sums staðar dálítil snjókoma þar um kvöldið. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust við austurströndina.

Á laugardag: Breytileg átt, víða á bilinu 5-13 m/s. Dálítil snjókoma eða él í flestum landshlutum. Vægt frost.

Á sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-10 og snjókoma með köflum, en þurrt að mestu sunnanlands. Frost 2 til 8 stig.

Á mánudag: Norðlæg átt og skýjað með köflum, en víða úrkomalaust. Herðir á frosti.

Á þriðjudag: Norðlæg átt eða breytileg átt og stöku él, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landins.

Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt. Dálítil él á norðanverðu landinu, en yfirleitt bjart sunnantil. Kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×