Veður

Gengur í storm með slyddu eða snjó­komu

Atli Ísleifsson skrifar
Gular viðvaranir taka víða gildi á landinu fyrir hádegi í dag vegna hríðarveðurs.
Gular viðvaranir taka víða gildi á landinu fyrir hádegi í dag vegna hríðarveðurs. Vísir/Vilhelm

Það mun ganga í suðaustanhvassviðri eða -storm með slyddu eða snjókomu með morgninum, en rigningu við ströndina og hlýnar nokkuð.

Veðurstofan spáir því að það verði hægari vindur og þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Það mun svo lægja heldur og verður þurrt að kalla í kvöld, fyrst vestantil.

Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út á Vestfjörðum, Breiðafirði, Faxaflóa, Suðurlandi og Miðhálendi vegna hríðarveðursins í dag. Taka þær gildi fyrir hádegi og eru þær síðustu í gildi fram á kvöld.

„Bent er á að mikil hálka geti myndast á vegum úti á morgun og eru ökumenn hvattir til að aka eftir aðstæðum.

Næsta lægð nálgast landið á morgun, föstudag, og gengur í suðaustanstorm og jafnvel rok með rigningu og hlýindum, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Ekki er gert ráð fyrir að snjói undan þeirri lægð eins og lægðinni í dag þar sem mun mildara loft verður yfir landinu á morgun.

Spáð er áframhaldandi umhelypingum um helgina með hvössum sunnanáttum, talsverðri rigningu, hlýindum og asahlákau og er því fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum til að fyrirbyggja vatnstjón. Vegna veðurhæðar eru ferðalangar hvattir til aka með gát, einkum ef ökutækin taka á sig vind,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Vaxandi sunnan- og suðaustanátt með hlýnandi veðri, 18-25 m/s og rigning undir kvöld, en þurrt að mestu norðaustanlands og hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag: Sunnan hvassviðri eða stormur og rigning eða slydda með köflum, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti 3 til 9 stig.

Á sunnudag: Gengur í suðaustan storm eða rok seinnipartinn með talsverðri rigningu og hlýindum, einkum sunnantil.

Á mánudag og þriðjudag: Suðvestanátt með éljagangi, en bjartviðri norðaustantil og kólnandi veður.

Á miðvikudag: Búast má við hvassri sunnanátt með rigningu og hlýnandi veðri í bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×