Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Sindri Sverrisson skrifar 27. febrúar 2025 10:03 Leikmenn íslenska landsliðsins fögnuðu úti á gólfi Laugardalshallar en alvöru fögnuðurinn tók svo við inni í búningsklefa. VÍSIR/VILHELM Ægir Þór Steinarsson fór vandlega yfir það með GAZ-bræðrum hvernig fagnaðarlæti íslenska landsliðsins í körfubolta voru á sunnudagskvöld, og aðfaranótt mánudags, eftir að liðið tryggði sér sæti á EuroBasket. „
Þegar þú hættir þá er það þetta sem þú saknar,“ sagði Pavel Ermolinskij þegar þeir Helgi Már Magnússon hófu að krefja Ægi um nákvæmar lýsingar á fagnaðarlátunum, allt frá lokaflauti og þar til að menn skriðu heim til sín seint um nóttina nú eða í erfitt morgunflug til meginlands Evrópu. Eftir fagnaðarlætin sem sjónvarpsáhorfendur og gestir Laugardalshallar gátu fylgst með þá má segja að hin sanni fögnuður hefjist hjá mönnum inni í klefa. Þar eru „fallegu stundirnar“ eins og Pavel orðaði. „En það sem er mest pirrandi þegar þú mætir inn í klefann núna, sem er alveg fáránlegt, er helvítis myndavélin sem er bara föst inni í klefa til að mynda fögnuðinn. Þegar maður mætir inn í klefa langar mann bara að „strip naked“ og taka orminn og eitthvað,“ sagði Ægir í nýjasta þætti GAZ-ins sem hlusta má á hér að neðan og á helstu hlaðvarpsveitum. En þegar útsendingu RÚV var lokið og flestir gestir farnir úr Laugardalshöll gátu menn fagnað með sínum hætti. Lýsingum Ægis ber þó að taka með einhverjum fyrirvara. Hann var óhræddur við að slá á létta strengi í spjalli við sína gömlu liðsfélaga. „Um leið og myndavélin var farin þá var bara teipað fyrir alla reykskynjara og kveikt á vindlunum, og þá byrjaði kampavínið og svoleiðis gleði. Við vorum bara að öskursyngja og gera allt sem maður getur gert á svona mómenti. Maður vill ekkert fara úr klefanum,“ sagði Ægir. Þjálfaranum skipað að mæta í partýið Draumur Pavels og Helga er að sjá um fararstjórn hjá landsliðinu og þeir reiknuðu með að eftir klefafögnuð hefði verið farið á flottan veitingastað til að fagna áfram. „Cafe Easy er okkar veitingastaður þegar við fögnum stórum áföngum í lífinu,“ sagði Ægir laufléttur og vísaði til kaffiteríunnar í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardalnum. Hópurinn hélt svo einkasamkvæmi á ónefndum bar í miðborg Reykjavíkur. „Þetta var þéttur hópur Þetta voru bara leikmenn og þjálfarar,“ sagði Ægir en landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen var reyndar efins um að taka áfram þátt í partýinu: „Craig var eitthvað að reyna að fara snemma heim en hann var bara dreginn inn í bíl. Ekki séns að hann væri ekki að fara að mæta.“ Ægir Þór Steinarsson hafði góða ástæðu til að fagna eftir sigurinn magnaða gegn Tyrkjum.vísir/Anton Morgunflug beint eftir fögnuðinn Ægir ræddi um ýmislegt fleira tengt fögnuðinum og kom meðal annars inn á „mjög slæma“ frammistöðu Tryggva Snæs Hlinasonar í gleðinni en tók fram að Elvar Már Friðriksson og Sigtryggur Arnar Björnsson hefðu staðið sig með sérstakri prýði. Þá skaut Ægir létt á Arnar Guðjónsson, afreksstjóra KKÍ, fyrir að reyna að senda leikmenn í morgunflug daginn eftir EM-fögnuð: „Þegar maður er að plana partý þá er mikilvægt að vera viðbúinn við öllu. Afreksstjórinn var hins vegar búinn að panta flug fyrir þrjá af þeim sem eru að spila erlendis, klukkan sjö morguninn eftir. Með átta tíma stoppi í Berlín! Hefur maður heyrt annað eins? Maðurinn hefur gert margt gott en menn voru bara að cancela flugum þarna á Cafe Easy.“ Hægt er að hlusta á GAZið á Tal með því að smella hér og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Leik lokið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Sjá meira