Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Sjávargrillið 3. mars 2025 08:47 Sjávargrillið er veitingastaður vikunnar á Vísi. Staðurinn er þekktur fyrir hlýlega og heimilislega stemningu. Í hjarta Reykjavíkur, á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu er að finna veitingastaðinn Sjávargrillið. Staðurinn er þekktur fyrir að bjóða upp á einstaka matarupplifun þar sem ferskasta hráefni er í forgrunni. Sjávargrillið er veitingastaður vikunnar á Vísi. „
Það má segja að ég sé að ferma „barnið“ en ég opnaði Sjávargrillið fyrir fjórtán árum, í apríl 2011. Okkar höfuðáhersla hefur alltaf verið á fyrsta flokks hráefni og að gera allt frá grunni, bæði mat og drykki,“ segir Gústav Axel Gunnlaugsson, matreiðslumeistari og eigandi Sjávargrillsins. Sjávargrillið „Einn vinsælasti rétturinn okkar á Sjávargrillinu er humar taco en við bjóðum að sjálfssögðu upp á bæði kjöt- og fiskrétti, sushi og fersk salöt. Í hádeginu er fiskur dagsins ávallt vinsæll kostur og við sækjum ferskan fisk á hverjum morgni til að tryggja hámarks gæði,“ segir Gústav. Matreiðslumeistarar staðarins leggja metnað sinn í að nýta fyrsta flokks hráefni og skapa rétti sem gleðja bragðlaukana. Matseðillinn er fjölbreyttur og breytist þrisvar til fjórum sinnum á ári til að endurspegla árstíðabundin hráefni. Sérstakir hátíðarseðlar eru í boði, til dæmis um jólin, sem gleðja bæði auga og munn. Sjávargrillið „Barþjónarnir okkar eru sannkallaðir snillingar í að hrista fram framúrskarandi kokteila en allir drykkir eru búnir til frá grunni. Sjávargrillið laðar að sér breiðan hóp gesta, bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Staðurinn er þekktur fyrir hlýlega og heimilislega stemningu þar sem starfsfólkið þekkir marga fastagesti með nafni og veit hvað þeir vilja. Þetta skapar notalegt andrúmsloft þar sem allir eru velkomnir. Sjávargrillið Skólavörðustígurinn er líflegur og er tilvalin fyrir þá sem vilja njóta mannlífsins í miðborginni. Nálægðin við kennileiti eins og Hallgrímskirkju og Hegningarhúsið gerir Sjávargrillið að ákjósanlegum áfangastað fyrir þá sem vilja sameina menningarlegt miðbæjarrölt og góða matargerð. Hvort sem þú ert að leita að stað til að halda hádegisfund með vinnufélögum eða njóta kvöldverðar með vinum og fjölskyldu, býður Sjávargrillið upp á hlýlegt umhverfi, framúrskarandi þjónustu og matargerð sem gleður alla. Sjávargrillið Sjávargrillið Sjávargrillið Sjávargrillið
Matur Veitingastaðir Mest lesið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Anora óvæntur sigurvegari á Óskarnum Bíó og sjónvarp Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Stjörnulífið: Kærleiksríkir menn á Bessastöðum Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Auddi og Steindi í BDSM Lífið Fleiri fréttir Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira