Daniil og Birnir í eina sæng Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. mars 2025 16:00 Rapparinn Daniil var að gefa út lag ásamt Birni. Saga Sig „Birnir hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum,“ segir rapparinn og ungstirnið Daniil en hann og Birnir voru að senda frá sér lagið Hjörtu. Lagið er unnið í samvinnu við pródúsentinn Matthías Eyfjörð, sem er jafnframt litli bróðir íslensku stórstjörnunnar GDRN.
Lagið er fyrsta lag af komandi plötu Daniils en án þess að vilja gefa of mikið upp segir hann breiðskífuna væntanlega fljótlega. Þeir voru sömuleiðis að gefa út tónlistarmyndband sem unnið er af leikstjóranum Gunnari Degi oft er kenndur við listakollektívið Fly.south. Hér má sjá tónlistarmyndbandið: Klippa: Daniil ft. Birnir - Hjörtu Bæði Daniil og Birnir hafa gefið af sér gott orð undanfarin ár og eru með vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Það eru því stórar fregnir í rappbransanum hérlendis að þeir komi saman á þessu sumarlega popplagi. „Birnir hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum og það hefur lengi verið í planinu að koma honum á lag. Hann átti upprunalega að vera með á Ef Þeir Vilja Beef en það gekk ekki alveg upp en svo gekk þetta upp hjá okkur núna,“ segir Daniil en síðastnefnda lagið er hans stærsta hingað til og fékk hann Joey Christ með sér í lið þar. „Þetta er fyrsti singúllinn af nýju plötunni og ég hlakka til að fólk fái að heyra meira.“ Hér má heyra lagið Hjörtu á streymisveitunni Spotify.
Tónlist Menning Tengdar fréttir Þakklátur að geta valið tónlistina fram yfir herinn Tónlistarmaðurinn Daniil hefur náð miklum árangri í íslenskum tónlistarheimi en hann var kosinn Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og var að senda frá sér plötuna 600. Hann verður með stóra útgáfutónleika í Gamla Bíó á morgun, föstudagskvöld, þar sem öllu verður til tjaldað. Blaðamaður tók púlsinn á þessum 21 árs gamla rappara, sem byrjaði að gera tónlist fyrir fjórum árum síðan. 20. apríl 2023 09:00 Lærði söng hjá Frikka Dór og á nú hittara með honum Rapparinn Daniil situr í fjórða sæti Íslenska listans á FM með nýtt lag sem ber heitið Aleinn. Með honum á laginu er enginn annar en Friðrik Dór en Daniil var einungis níu ára gamall þegar hann kynntist Frikka, í gegnum söngtíma. 22. apríl 2023 17:00 Mest lesið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Fleiri fréttir Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
Þakklátur að geta valið tónlistina fram yfir herinn Tónlistarmaðurinn Daniil hefur náð miklum árangri í íslenskum tónlistarheimi en hann var kosinn Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og var að senda frá sér plötuna 600. Hann verður með stóra útgáfutónleika í Gamla Bíó á morgun, föstudagskvöld, þar sem öllu verður til tjaldað. Blaðamaður tók púlsinn á þessum 21 árs gamla rappara, sem byrjaði að gera tónlist fyrir fjórum árum síðan. 20. apríl 2023 09:00
Lærði söng hjá Frikka Dór og á nú hittara með honum Rapparinn Daniil situr í fjórða sæti Íslenska listans á FM með nýtt lag sem ber heitið Aleinn. Með honum á laginu er enginn annar en Friðrik Dór en Daniil var einungis níu ára gamall þegar hann kynntist Frikka, í gegnum söngtíma. 22. apríl 2023 17:00