Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 7. sæti Bestu deildar karla í sumar.
deild karla FH Tengdar fréttir Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram 8. sæti Bestu deildar karla í sumar. 28. mars 2025 10:00 Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 9. sæti Bestu deildar karla í sumar. 27. mars 2025 10:01 Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Vestra 10. sæti Bestu deildar karla í sumar. 26. mars 2025 10:03 Besta-spáin 2025: Í túninu heima Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 25. mars 2025 10:00 Besta-spáin 2025: Drepþreyttir á deildaflakkinu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍBV 12. sæti Bestu deildar karla í sumar. 24. mars 2025 10:00 Mest lesið Ronaldo segir þessum kafla lokið Fótbolti Sótt að Sævari Atla á flugvellinum í Bergen Fótbolti Niðurbrotinn Klopp í sjokki Enski boltinn Þeir bestu (4. sæti): Sigurvegarinn Íslenski boltinn Sara sátt við að hafa kvatt landsliðið: „Hélt allt of mörgum boltum á lofti“ Fótbolti Vann ofurhlaup með barn á brjósti Sport Sara óvart í stuttbuxum í kringlu: „Kölluðu á mig að koma mér út“ Fótbolti Greip í hár mótherja og kippti til og frá Fótbolti Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Enski boltinn Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur Körfubolti
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Aftureldingar laugardaginn 5. apríl. Íþróttadeild spáir FH 7. sæti Bestu deildarinnar í sumar og Hafnfirðingar endi einu sæti neðar en á síðasta tímabili. Byrjum á því jákvæða. Kjartan Kári Halldórsson skrifaði undir nýjan samning við FH þrátt áhuga annarra liða. Hann var besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili ásamt Birni Daníel Sverrissyni; skoraði átta mörk og lagði upp níu. En ef frá er talin staðfesta Kjartans Kára hafa jákvæðu fréttirnar úr Kaplakrika á undirbúningstímabilinu verið heldur fáar. Heimir Guðjónsson tók aftur við FH haustið 2022.vísir/diego Logi Hrafn Róbertsson og Ólafur Guðmundsson eru farnir í atvinnumennsku og munar um minna. Ísak Óli Ólafsson er meiddur og FH-liðið er nánast miðvarðalaust korteri í mót. Eins og staðan er núna gæti verið að bakverðirnir Jóhann Ægir Arnarsson og Böðvar Böðvarsson standi vaktina í miðri vörninni í fyrsta leiknum gegn Stjörnunni mánudaginn 7. apríl. grafík/bjarki Birkir Valur Jónsson er kominn til að spila stöðu hægri bakvarðar og Bragi Karl Bjarkason kom svo frá ÍR en hann skoraði samtals 31 mark í Lengjudeildinni og 2. deildinni tímabilin 2023 og 2024. Spennandi verður að sjá hvernig hann plummar sig í efstu deild. Þá hafa orðið markvarðaskipti hjá FH en Mathias Rosenörn kom frá Stjörnunni á meðan Sindri Kristinn Ólafsson fór aftur heim til Keflavíkur. Markvarslan var stærsti akkilesarhæll FH á síðasta tímabili. Tölfræðin talar sínu máli. FH „átti“ aðeins að fá á sig 35 mörk samkvæmt xG-fræðunum en fékk á sig fimmtíu í raunheimum. Þessi tölfræði verður að lagast í sumar. grafík/bjarki FH var í ágætis málum lengi framan af síðasta tímabili. Liðið vann leikina sem flestir bjuggust við að það myndi vinna en eftir 0-2 útisigur á Vestra í 16. umferð fór allt loft úr blöðrunni. FH-ingar unnu aðeins einn af síðustu ellefu leikjum sínum og fengu bara eitt stig í úrslitakeppni efri hlutans. FH fékk 34 stig í fyrra, sex stigum minna en tímabilið 2023, það fyrsta eftir endurkomu Heimis Guðjónssonar í Kaplakrika. grafík/bjarki Leikmannahópur FH veiktist eftir skiptin við KR um mitt mót - Kristján Flóki Finnbogason kom fyrir Gyrði Hrafn Guðbrandsson og Ástbjörn Þórðarson - og Hafnfirðingar máttu engan veginn við því að missa Úlf Ágúst Björnsson út í nám. Hann er liðinu gríðarlega mikilvægur. Heimavöllurinn gaf FH svo lítið í fyrra en liðið vann aðeins fjóra leiki í Kaplakrika síðasta sumar. Dýrðardagar FH eru að baki og það er fátt sem bendir til þess að þeir séu væntanlegir aftur í bráð. Liðið er langt á eftir þeim bestu á Íslandi og þarf að sætta sig við nýjan veruleika; finna sér nýjan samastað í tilverunni. Kjartan Kári Halldórsson ákvað að halda tryggð við FH. Hann kom með beinum hætti að sautján mörkum á síðasta tímabili.vísir/diego Í slíku millibilsástandi er gott að vera með traustar hendur um stýrið. Heimir er á leið inn í sitt þrettánda tímabil sem aðalþjálfari og hefur séð allt sem hægt er að sjá í bransanum. Sú reynsla gæti reynst FH mikilvæg í sumar.
Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram 8. sæti Bestu deildar karla í sumar. 28. mars 2025 10:00
Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 9. sæti Bestu deildar karla í sumar. 27. mars 2025 10:01
Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Vestra 10. sæti Bestu deildar karla í sumar. 26. mars 2025 10:03
Besta-spáin 2025: Í túninu heima Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 25. mars 2025 10:00
Besta-spáin 2025: Drepþreyttir á deildaflakkinu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍBV 12. sæti Bestu deildar karla í sumar. 24. mars 2025 10:00