Í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar segir að í þeim hafi 36 starfsmönnum verið sagt upp störfum, annars vegar á sviði ferðaþjónustu og hins vegar veitingasölu.
Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í júní.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10 prósent starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.
Vinnumálastofnun bárust þrjár tilkynningar um hópuppsagnir í febrúarmánuði. Þar var 64 starfsmönnum sagt upp störfum á sviðum fólksflutninga, matvælaframleiðslu og heilbrigðisþjónustu.