Norðan kaldi eða stinningskaldi í dag Eiður Þór Árnason skrifar 17. apríl 2025 08:09 Um páskahelgina verður yfirleitt hægur vindur og bjart með köflum. Vísir/Vilhelm Í dag má búast við norðan kalda eða stinningskalda á landinu en á Austfjörðum verður allhvöss norðvestanátt fram eftir degi. Norðlæg átt 8 til 13 metrar á sekúndu, en norðvestan 13 til 18 austast.
Dálítið éljaloft er norðan- og austanlands og hiti um frostmark en í kvöld bætir heldur í ofankomu um tíma. Sunnan heiða er yfirleitt bjart, þurrt og hiti að 6 stigum að deginum. Þetta kemur fram í veðurspá Veðurstofu Íslands. Lægir um hádegi á morgun, en norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu austast fram eftir degi. Bjartviðri, en skýjað norðaustantil fram á kvöld. Bjart í flestum landshlutum, en sums staðar stöku él eða skúrir. Hiti breytist lítið. Um páskahelgina verður yfirleitt hægur vindur og bjart með köflum en búast má við rakara lofti og skýjuðu veðri við ströndina. Víða hiti nálægt frostmarki, en allt að 7 stigum sunnan- og suðvestantil að deginum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag (föstudagurinn langi): Norðlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 við austurströndina fram yfir hádegi. Skýjað að mestu norðan- og austanlands, en léttir til síðdegis. Yfirleitt bjart sunnan- og vestantil. Vægt frost á norðan- og austanverðu landinu, en annars hiti að 8 stigum. Á laugardag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en skýjað með köflum við ströndina og lítilsháttar væta vestast. Hiti um og undir frostmarki, en að 7 stigum sunnan- og vestanlands. Á sunnudag (páskadagur): Austan strekkingur syðst á landinu, annars hægari vindur. Víða þurrt og bjart veður, en skýjað við norður- og austurströndina. Hiti breytist lítið. Á mánudag (annar í páskum): Austlæg átt, dálítil ofankoma og frost 0 til 4 stig, en að mestu bjart og hiti 1 til 7 stig sunnan- og vestantil. Á þriðjudag: Austlæg átt, yfirleitt skýjað og sums staðar lítilsháttar rigning eða slydda, en úrkomumeira austantil um kvöldið. Heldur hlýnandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu og hlýnandi veðri, en lengst af þurrt norðan heiða.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira