Mögulegt að hitinn fari í tuttugu stig í fyrsta sinn í ár Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2025 07:13 Þegar líður á daginn minnkar vindurinn smám saman. Vísir/Vilhelm Sunnan stinningskaldi eða allhvass vindur er nú á landinu með rigningu og súld, en þurrt norðaustantil. Þegar líður á daginn minnkar vindurinn smám saman og úrkoman verður skúrakenndari vestast á landinu.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að í norðaustantil verði áfram þurrt og þar verði líka hlýtt. Möguleiki sé á að fyrstu tuttugu stig ársins mælist þar í dag í hlýjum sunnan vindi og björtu veðri. „Á morgun er útlit fyrir sunnan kalda eða stinningskalda og rigningu með köflum, en áfram þurrt norðaustantil á landinu. Hitinn þokast niðurávið og verður á bilinu 5 til 14 stig á morgun, hlýjast á Austurlandi. Aðfaranótt föstudags gera spár ráð fyrir að berist kaldur loftmassi yfir landið úr vestri, ættaður frá heimskautasvæðum Kanada. Þá snýst í suðvestan stinningskalda eða allhvassan vind með skúra- eða éljahryðjum nokkuð víða, en áfram nær úrkoman ekki yfir á norðaustanvert landið. Þetta veðurlag helst síðan væntanlega áfram út föstudaginn. Á laugardaginn dregur úr vindinum, en áfram má búast við éljum eða skúrum og fremur kalt í veðri, sérílagi miðað við það sem verið hefur undanfarið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning með köflum, en þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Suðvestan 10-18, skúrir eða él og hiti 2 til 8 stig. Þurrt að kalla norðaustanlands með hita að 12 stigum. Á laugardag: Vestlæg átt 5-13 og él eða skúrir, en bjartviðri austanlands. Áfram fremur kalt í veðri. Á sunnudag: Suðvestanátt, skýjað og sums staðar dálítil væta, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 7 til 13 stig yfir daginn. Á mánudag og þriðjudag: Suðvestan- og sunnanátt og bjartviðri, en skýjað við vesturströndina. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira