Tilkynnt var um ráðninguna á Friðriki í tölvupósti til starfsmanna Eikar fyrr í dag, samkvæmt upplýsingum Innherja, en hann mun þar starfa með nýjum forstjóra félagsins, Hreiðari Má Hermannssyni, en þeir unnu áður náið saman um árabil hjá Arion banka. Friðrik mun hefja störf hjá Eik um næstu mánaðarmót.
Þetta er fyrsta ráðningin á lykilstarfsmanni sem Hreiðar Már tilkynnir um frá því að hann tók við forstjórastarfinu hjá Eik eftir aðalfund fasteignafélagsins í liðnum mánuði. Hreiðar Már, sem hefur víðtæka reynslu af fjárfestinga- og fjármálastarfsemi, var áður forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka.

Friðrik hefur gegnt starfi forstöðumanns lögfræðiráðgjafar Arion banka, sem heyrir undir sviðið rekstur og menning, frá því að sú staða var fyrst sett á fót árið 2023. Hann hefur starfað í lögfræðirágjöf hjá Arion samfellt undanfarin sex ár, þar áður sem aðstoðaryfirlögfræðingur bankans. Á árunum 2014 til 2019 var Friðrik eigandi á lögmannsstofunni Réttur og sat í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum.
Friðrik er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og með LLM-gráðu í félaga- og verðbréfamarkaðsrétti frá lagadeild Harvard-háskólans í Bandaríkjunum.
Eik er þriðja stærsta fasteignafélag landsins, skráð í Kauphöllina, og með markaðsvirði upp á liðlega 43 milljarða.