Lífið

Lauf­ey Lín og Barbra Streisand á toppi laga­lista

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Laufey Lín hlaut Grammy-verðlaun fyrir breiðskífu sína Bewitched.
Laufey Lín hlaut Grammy-verðlaun fyrir breiðskífu sína Bewitched. AP/Chris Pizzello

Laufey Lín Jónsdóttir trónir á toppi ITunes-lagalistans í Bandaríkjunum með lagið Letter to My 13-Year-Old-Self sem hún flytur með söng- og leikkonunni bandarísku Börbru Streisand.

Um er að ræða lag sem Laufey gaf út á verðlaunabreiðskífu sinni Bewitched árið 2023. Fyrir hana hlaut hún Grammy-verðlaun og sló met á streymisveitunni Spotify fyrir flest streymi á útgáfudegi skífu í djassflokki.

Þessa nýju útgáfu sem hún syngur með hinni goðsagnakenndu Börbru Streisand og trónir á toppi lagalistans er af breiðskífu sem Streisand gefur út seinna í mánuðinum. Á plötunni, sem ber heitið The Secret of Life: Partners, Volume 2, syngur hún dúetta með þekktum nöfnum á borð við Ariönu Grande, James taylor, Sam Smith, Bob Dylan og Paul McCartney.

Laufey, sem er einungis 25 ára, hefur notið mikilla vinsælda víða um heim en til að mynda var hún kjörin ein af konum ársins hjá tímaritinu Time.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.