50+: Að eiga draumalista getur komið okkur skemmtilega á óvart Rakel Sveinsdóttir skrifar 10. júní 2025 07:00 Það eru ótrúlega mörg jákvæð áhrif af því að eiga draumalista. Sem ekki aðeins getur hvatt okkur áfram, aukið á tilhlökkun eða gert lífið skemmtilegra og innihaldsríkara heldur líka komið okkur skemmtilega á óvart með því að draga fram óvænta en ævintýralega drauma. Hvernig lítur þinn draumalisti út? Vísir/Getty Það er gott fyrir alla að eiga draumalista, eða bucket-lista eins og við segjum það upp á enskuna. Að eiga draumalista eftir fimmtugt er jafnvel enn mikilvægara en nokkru sinni.
En hvers vegna ætli það sé? Jú; það er svo margt sem gerist eftir fimmtugt. Hlutverkin okkar eru oft að breytast og það hvað okkur fannst mikilvægt áður og svo framvegis. Auðveldast er að nefna dæmi um að krakkarnir séu orðnir stálpaðir og að kappsemin felst ekki lengur í að byggja upp heimili. Margir horfa öðruvísi til starfsframans en áður og upplifa vinnuna ekki eins ofarlega á forgangslistanum og svo framvegis. Sumir hafa þó þá skringilegu tilfinningu að þeim langi í eitthvað „meira“ í lífið, en vita ekki alveg hvað. Gott fyrsta skref til að kryfja þessa tilfinningu betur er að setjast niður með kaffibolla, eða jafnvel einu vínglasi að kvöldi, og skrifa niður lýsingar á a) Einum degi eins og þér fyndist hann frábær og 2) Einni viku eins og þér fyndist hún frábær. Því oft áttum við okkur betur á því hvað okkur langar að gera þegar við búum til svona einfalda lista eða lýsingar eins og þessar. En aftur að draumalistanum. Það sem gerir draumalistann svo góðan fyrir fólk sem er smátt og smátt að skipta um takt eftir áratuga hlutverkaskipan í uppeldi og uppbyggingu heimilis og starfsframa eru margvísleg jákvæð áhrif. Hér eru nokkur jákvæð atriði: Draumalistinn hjálpar okkur að setja drauma okkar g langanir niður á blað. Það sem við þurfum samt að passa okkur á er að þegar við skrifum niður atriði á draumalistann þá eigum við ekki að hugsa hluti eins og „já, ef þetta gerist, þá get ég mögulega gert þetta….“ Heldur einfaldlega að skrifa niður það sem okkur langar að gera; óháð því hvernig eða hvort. Því draumalistinn er draumalisti! Þegar við erum búin að búa til draumalista, getum við farið að setja okkur markmið. Veljum kannski eitt eða tvö atriði af draumalistanum sem við ætlum að setja í forgang og förum að vinna í því: Hvenær og hvernig og svo framvegis. Gott er að setja tímalínu á markmiðin okkar og hér er um að gera að ræða hlutina við okkar nánasta fólk; Maka eða vini. Að eiga draumalista er mikið pepp. Og meira segja sagt að hjálpi stundum við að yfirstíga efasemdir eða kvíða um að geta ekki þetta eða hitt. Því draumalistinn eykur líkurnar á að okkur takist að uppfylla drauma okkar og vá hvað það er góð tilfinning að átta okkur betur á því hversu megnug við erum og líkleg til að geta gert svo margt! Draumalisti getur gert okkur orkumeiri og jafnvel ánægðari. Því við verðum svo uppfull af áhuga, ástríðu og tilhlökkun; Svo margt i gangi hjá okkur að okkur finnst, þótt við séum bara að undirbúa það sem við ætlum að gera fyrst á listanum. Enn ein jákvæðu áhrifin er hvernig við mögulega komum okkur sjálfum aðeins út fyrir þægindarammann; Förum að átta okkur betur á því hvað okkur langar til að gera, hvað okkur finnst skemmtilegt að gera og svo framvegis. Síðast en ekki síst getur draumalistinn einfaldlega komið okkur sjálfum á óvart; Allt í einu erum við farin að breyta um einhverja stefnu til framtíðar, hugsa lengra fram í framtíðina, sjáum fyrir okkur ævintýralegra líf en áður, einhverjar breytingar sem við höfðum ekki hugsað fyrir áður og svo framvegis. Því já; Draumalistinn hjálpar okkur ekki aðeins að vera virk í að dreyma og hugsa stórt, heldur hjálpar okkur líka að komast að því hverjir draumarnir okkar eru eftir allt saman: Og hversu spennandi er það nú?!
Tengdar fréttir 50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að. 26. maí 2025 07:02 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ „Þú getur verið nístandi einmana heima hjá þér með fjölskyldu þinni eða í vinahóp ef það eru ekki traust og kærleiksrík tengsl,“ segir Sigríður Hulda Jónsdóttir eigandi SHJ ráðgjafar. 18. maí 2025 08:00 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Það er mun auðveldara fyrir okkur að takast á við vanlíðan ef við gerum okkur grein fyrir því hvað veldur henni, viðurkennum hana eða eigum yfir hana orð eða skýringu. Sumum foreldrum finnst til dæmis mjög erfitt þegar börnin flytja að heiman. 1. maí 2025 08:02 Hjónabönd 50+: „Ekki gott ef gremjubankinn stækkar og stækkar“ „Þegar fólk hefur verið saman í áratugi er ekkert ólíklegt að ýmislegt hafi safnast í gremjubankann í gegnum tíðina,“ segir Íris Eik Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fjölskyldu- og sálfræðiþjónustunnar Samskiptastöðin. 17. nóvember 2024 08:01 Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ „Því miður hef ég þó séð það of oft að uppkomin börn eru með slíka afskiptasemi fjármálum foreldra að eiginleg samskipti foreldra og barna verða óeðlileg, vegna peninga og væntra arfshluta. Hið rétta er þó að í lifanda lífi, eru peningamál foreldra almennt þeirra eigin mál,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 27. október 2024 08:02 Mest lesið Ungfrú Ísland sigursælust á Grímunni Menning Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Lífið Frægasti ástarþríhyrningur sögunnar fær nýtt líf Menning Ljóð Lomma reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar Menning Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun Forsetabörnin loksins komin heim Lífið Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Tónlist Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Lífið Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Lífið Fleiri fréttir Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn 50+: Að eiga draumalista getur komið okkur skemmtilega á óvart Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki fyrir bóta Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk „Strákar verða að sýna tilfinningar“ „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Sjá meira
50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að. 26. maí 2025 07:02
50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ „Þú getur verið nístandi einmana heima hjá þér með fjölskyldu þinni eða í vinahóp ef það eru ekki traust og kærleiksrík tengsl,“ segir Sigríður Hulda Jónsdóttir eigandi SHJ ráðgjafar. 18. maí 2025 08:00
50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Það er mun auðveldara fyrir okkur að takast á við vanlíðan ef við gerum okkur grein fyrir því hvað veldur henni, viðurkennum hana eða eigum yfir hana orð eða skýringu. Sumum foreldrum finnst til dæmis mjög erfitt þegar börnin flytja að heiman. 1. maí 2025 08:02
Hjónabönd 50+: „Ekki gott ef gremjubankinn stækkar og stækkar“ „Þegar fólk hefur verið saman í áratugi er ekkert ólíklegt að ýmislegt hafi safnast í gremjubankann í gegnum tíðina,“ segir Íris Eik Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fjölskyldu- og sálfræðiþjónustunnar Samskiptastöðin. 17. nóvember 2024 08:01
Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ „Því miður hef ég þó séð það of oft að uppkomin börn eru með slíka afskiptasemi fjármálum foreldra að eiginleg samskipti foreldra og barna verða óeðlileg, vegna peninga og væntra arfshluta. Hið rétta er þó að í lifanda lífi, eru peningamál foreldra almennt þeirra eigin mál,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 27. október 2024 08:02