Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Atli Ísleifsson skrifar 12. júní 2025 07:45 Hiti á landinu verður átta til sautján stig í dag. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð gengur nú norður yfir landið og fylgir henni væta með köflum í flestum landshlutum. Hiti á landinu verður átta til sautján stig og hlýjast á Austurlandi.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að seinnipartinn verði lægðin fyrir norðan land og beini þá til okkar vestan- og norðvestanátt, víða golu eða kalda. Yfirleitt verður úrkomulítið og sunnan- og austanlands ætti að birta til. „Norðaustlæg eða breytileg átt á morgun, 3-10 m/s og milt og bjart veður á stórum hluta landsins, en hiti verður víða á bilinu 11 til 18 stig. Austantil á landinu verða hins vegar einhver lágský viðloðandi fyrri part dags og þar nær hitinn sér líklega ekki á strik í hafáttinni. Áfram milt og bjart á Norður- og Vesturlandi á laugardag, en mun svalara og einhver væta austanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða bjartviðri, en skýjað með köflum á austanverðu landinu fram eftir degi. Hiti frá 7 stigum við norðausturströndina, upp í 18 stig suðvestanlands. Á laugardag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10. Súld eða dálítil rigning suðaustan- og austantil og hiti 5 til 11 stig, en þurrt og bjart á Norður- og Vesturlandi með hita að 17 stigum. Á sunnudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og dálítil væta á víð og dreif. Allvíða þokuloft við ströndina. Hiti 7 til 15 stig, mildast inn til landsins. Á mánudag og þriðjudag (lýðveldisdagurinn): Breytileg átt og rigning eða súld með köflum. Hiti 7 til 14 stig.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira