Veður

Skýjað og væta í flestum lands­hlutum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Búast má við því að skýjað verði í dag.
Búast má við því að skýjað verði í dag. Vísir/Vilhelm

Í dag verður austlæg eða breytileg vindátt frá þremur til tíu metra sekúndu. Búast má við einhverri vætu í flestum landshlutum. Hlýjast verður á Vesturlandi þar sem hitinn gæti náð upp í fimmtán stig.

Einnig verður skýjað að mestu yfir landinu í dag.

Veðurhorfur næstu daga

Miðvikudag: Austlæg átt 5-13 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning eða súld með köflum, en þurrt á norðanverðu landinu þangað til síðdegis. Hiti frá 7 stigum á Austfjörðum, upp í 17 stig á Norðurlandi.

Á fimmtudag: Suðaustan 8-13, en hægari breytileg átt á Suður- og Vesturlandi. Víða skúrir eða rigning, talsverð úrkoma suðaustantil á landinu. Hiti 8 til 15 stig.

Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað með köflum og líkur á skúrum, einkum síðdegis. Hiti víða 10 til 16 stig.

Á laugardag: Norðlæg átt 5-13. Skýjað og dálítil rigning eða súld á Norður- og Austurlandi, hiti 7 til 12 stig. Bjartviðri sunnan heiða með stöku skúrum síðdegis og hita 12 til 17 stig.

Á sunnudag og mánudag: Breytileg átt og líkur á dálítilli vætu í flestum landshlutum. Svalt í veðri.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×