Ágústa Eva slær sér upp með KR-ingi Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. september 2025 14:46 Ágústa Eva og Antonio hafa verið að slá sér upp undanfarna mánuði. Ágústa Eva Erlendsdóttir, söngvari og leikkona, hefur fundið ástina í örmum grafíska hönnuðarins Antonio Otto Rabasca. Nýlega sást til þeirra leiðast í Hljómskálagarðinum ástfangin upp fyrir haus.
Heimildir fréttastofu herma að parið hafi verið slá sér upp undanfarna mánuði. Hvergerðingurinn Ágústa Eva er landsþekkt en hún spratt fram á sjónarsviðið sem karakterinn Silvía Nótt í sjónvarpsþáttunum Sjáumst með Silvíu Nótt á Skjá einum og varð síðan landsfræg þegar hún fór sem Silvía með lagið „Til hamingju Ísland!“ í Eurovision. Ágústa Eva og Gunni Hilmars mynda dúóið Sycamore Tree.Rakel Rún Hún hefur síðan leikið á sviði, í sjónvarpi og í kvikmyndum, þar á meðal í Mýrinni (2006), Bjarnfreðarsyni (2009) og Ég man þig (2017). Þá hefur hún skemmt ófáum börnum sem grallarinn Lína Langsokkur í Þjóðleikhúsinu og sem prinsessan Elsa í teiknimyndinni Frosinn (2013). Hún hefur einnig getið sér gott orð sem söngkona, var í sveitunum Ske og Kritikal Mazz og er nú annar hluti dúósins Sycamore Tree. Ágústa á fyrir einn son með Jóni Viðari Arnþórssyni, eiganda MMA Iceland og Icelandic Stunts, og eina dóttur með Aroni Pálmarssyni, handboltamanni sem er nýbúinn að leggja skóna á hilluna. Antonio Otto Rabasca er ekki eins þekktur en hann starfar sem grafískur hönnuður hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Gray Line. Hann hefur mikla reynslu af því að starfa í flugbransanum, var grafískur hönnuður hjá Wow frá 2017 til 2019 og starfaði þar áður hjá Air Atlanta í rúm tólf ár. Antonio er fær ljósmyndari og mikill KR-ingur og myndar gjarnan leiki körfuboltaliða KR. Þá var hann heiðraður með silfurmerki KR á 125 ára afmæli félagsins í fyrra auk fjölda annarra dyggra KR-inga. Antonio á þrjár dætur úr fyrra hjónabandi.
Ástin og lífið KR Tónlist Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira