Tap í síðasta leik fyrir EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2025 18:39 Martin Hermannsson var stigahæstur í íslenska liðinu gegn Litáen. vísir/anton Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Litáen, 96-83, í síðasta æfingaleik sínum fyrir EM sem hefst í næstu viku. Leikið var í Alytus í Litáen í dag.
Litáen hefur á gríðarlega sterku liði að skipa og leiddi allan tímann í leiknum í dag. Litáar komust í 14-3 og leiddu með níu stigum eftir 1. leikhluta, 23-14. Sami munur var á liðunum í hálfleik, 47-38. Litáíska liðið hélt því íslenska alltaf í hæfilegri fjarlægð og náði mest tuttugu stiga forskoti. Á endanum munaði þrettán stigum á liðunum, 96-83. Sex leikmenn íslenska liðsins skoruðu tíu stig eða meira í leiknum. Martin Hermannsson var stigahæstur með þrettán stig en Elvar Már Friðriksson kom næstur með tólf stig. Allir tólf leikmenn á skýrslu komu við sögu í leiknum í dag. Azuolas Tubelis var stigahæstur á vellinum með 23 stig og Jonas Valanciunas, leikmaður Denver Nuggets í NBA-deildinni, skoraði sextán stig og tók átta fráköst. Íslensku strákarnir halda nú til Katowice í Póllandi þar sem riðill þeirra á EM verður leikinn. Fyrsti leikur Íslands á EM er gegn Ísrael á fimmtudaginn. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland tekur þátt á EM en liðið bíður enn eftir sínum fyrsta sigri á mótinu.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira